Þetta sé bæjar­stjórn Kópa­vogs til skammar - Vísir

Þetta sé bæjar­stjórn Kópa­vogs til skammar - Vísir
Í dag, verkalýðsdaginn 1. maí, fara fram kröfugöngur og fundir um allan bæ. Meðal þeirra sem tóku sig til og efndu til viðburðar í dag er Samfylkingarfélagið í Reykjavík, með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra og formann Samfylkingarinnar í fararbroddi.

Sparaði ekki stóru orðin

Þar sagði Kristrún í ræðu sinni að stærsta húsnæðismálið á Íslandi í dag væri að Samfylkingin færi með sigur af hólmi í sveitastjórnarkosningunum þann 16. maí. Þá sagði hún að í Kópavogi væru húsnæðismál í ólagi.„Tökum dæmi: Tíundi hver Íslendingur er Kópavogsbúi, en samt hefur bæjarstjórnin í Kópavogi ekki úthlutað einni einustu lóð til Bjargs, sem byggir fyrir tekjulægra vinnandi fólk og tryggir fjölskyldum þess öruggt húsnæði. Núll lóðir, á 10 árum, í næstfjölmennasta sveitarfélagi landsins. Þetta er til skammar, svo ekki sé fastar að orði kveðið,“ sagði Kristrún.

Legið eins og ormur á gulli

Hún fór svo um víðan völl í ræðu sinni og kom meðal annars inn á nýjan húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar sem og leikskólamál. Í vikunni hafi verið samið um fjórtán hundruð íbúðir á ríkislóðum í Reykjavík. Þá sagðist hún ekki átta sig á því hvers vegna ríkisstjórnir síðustu ára hafi „legið á þessum lóðum, verðmætu en vannýttu byggingarlandi í borginni, eins og ormur á gulli?“
Loks sagðist hún hafa orðið steinhissa á viðbrögðum pólitískra andstæðinga Samfylkingarinnar við „þessu mikilvæga og sjálfsagða baráttumáli okkar jafnaðarfólks“ en um er að ræða lögfestingu réttar til leikskólavistar.  Það hafi verið gert á öllum hinum Norðurlöndunum nú þegar.„Það hefur ekki farið framhjá neinum að við viljum lögfesta rétt til leikskólavistar — eins og gert hefur verið á öllum hinum Norðurlöndunum. Með sameiginlegri fjármögnun ríkis og sveitarfélaga. Þetta væri risastórt skref fyrir Ísland — á pari við stóru sigra verkalýðshreyfingarinnar sem við rifjum gjarnan upp á hátíðlegum stundum eins og 1. maí,“ segir Kristrún.
#bæjarstjórn #kópavogs #skammar #vísir #þetta


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262877035d/thetta-se-baejarstjorn-kopavogs-til-skammar

Fatal error: Uncaught Error: Call to undefined function getRecentArticles() in /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php:260 Stack trace: #0 /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php(36): showArticlePage() #1 {main} thrown in /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php on line 260