Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambands Íslands, segir verðbólgutölur vera mikið áhyggjuefni og segir að flest bendi til þess að forsendur kjarasamninga muni bresta.
Tólf mánaða verðbólga mælist nú 5,1% og hjaðnar lítillega en hún var 5,2% í síðasta mánuði. Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,07% á milli mánaða.
Stórkostlegar breytingar þurfi
„Verðbólgan lækkar einungis úr 5,2% í 5,1% þrátt fyrir inngrip stjórnvalda sem lækkuðu virðisaukaskatt á eldsneyti um síðustu mánaðamót. Það er ansi margt sem bendir til þess að forsendur kjarasamninga muni bresta,“ segir Vilhjálmur en þær kveða á um að heimilt verði að segja kjarasamningum upp ef verðbólga í ágúst mælist yfir 4,7%.
Vilhjálmur segist ekki sjá fyrir sér að tólf mánaða verðbólgan í ágúst verði 4,7% nema einhverjar stórkostlegar breytingar verði á.
„Þetta eru alvarleg tíðindi og enn og aftur ítreka ég það að þeir sem fara verst út úr þessu er verka- og lágtekjufólk sem líður mest fyrir hátt vaxtastig, háa leigu og háa verðbólgu. Það er óhætt að segja að alvarlegt ástand sé að teiknast,“ segir hann.