„Þessir hel­vítis út­lendingar skilja ekki neitt“ - Vísir

„Þessir hel­vítis út­lendingar skilja ekki neitt“ - Vísir

„Þessir hel­vítis út­lendingar skilja ekki neitt“ - Vísir

Konurnar lýsa því hvernig erlendur uppruni, takmörkuð íslenskukunnátta og ótti við að missa vinnuna settu mark sitt á fyrstu ár þeirra á vinnumarkaði hér á landi. Þær voru settar í ræstingar þrátt fyrir menntun, fengu óæskileg verkefni sem íslenskir starfsmenn gátu neitað og þurftu að sanna aftur og aftur að þær væru jafnhæfar öðrum.

Þetta kemur fram í BA ritgerð Körlu Önnu Karlsdóttur í félagsvísindum við Háskólann á Akureyri, sem fjallar um upplifun innflytjenda af kynþáttafordómum á íslenskum vinnumarkaði.

Karla ræddi við fimm konur á aldrinum 30 til 43 ára sem allar hafa búið á Íslandi í að minnsta kosti sex ár, sú sem lengst hafði búið hér í tuttugu ár, og meðalstarfsaldur þeirra á íslenskum vinnumarkaði var um þrettán ár. Allar störfuðu innan menntakerfisins þegar viðtölin fóru fram. Fjórar höfðu lokið háskólanámi, þar af tvær meistaragráðu, en sú fimmta var með sveinspróf í matreiðslu. Nöfnin Anna, Ásta, Bríet, Dóra og Emma eru gervinöfn.

Þrjár kvennanna sögðust hafa orðið fyrir kynþáttafordómum á vinnustöðum. Reynslan birtist sjaldnast í opinskáum árásum heldur frekar í óþægilegum athugasemdum, vanmati, félagslegri útilokun og því að þeim var síður treyst fyrir ábyrgð.

Menntun ekki metin að verðleikum

„Ég valdi þetta viðfangsefni þar sem ég hef mikinn áhuga á jafnréttismálum og stöðu innflytjenda á Íslandi. Frá upphafi vissi ég að ég vildi skrifa lokaritgerðina mína um málefni sem tengdust innflytjendum, enda hafði umræða um stöðu þeirra og framkomu gagnvart þeim á íslenskum vinnumarkaði vakið athygli mína,“ segir Karla í samtali við Vísi.

Karla segir að við frekari athugun hafi komið í ljós að margir innflytjendur sækja frekar í samskipti við aðra innflytjendur þar sem þeir upplifa meiri skilning, öryggi og stuðning innan þess hóps.

Karla segir áhugavert að þeir sem bjuggu yfir betri íslenskukunnáttu virtust síður verða fyrir kynþáttafordómum.Aðsend

„Þeir tengja betur við sameiginlega reynslu sína og upplifa síður streitu í vinnuumhverfinu. Jafnframt kom fram að þeir upplifa sig ekki alltaf metna til jafns við aðra starfsmenn, jafnvel þótt þeir búi yfir meiri menntun eða víðtækari starfsreynslu,“ segir hún jafnframt.

„Það sem stóð helst upp úr var að menntun virtist oft ekki skipta eins miklu máli og ég bjóst við. Í mörgum tilfellum skipti íslenskukunnátta meira máli, sem er skiljanlegt upp að vissu marki. Hins vegar fannst mér áhyggjuefni að sjá dæmi um fólk með mikla menntun sem vann störf langt undir sinni hæfni.

Einnig kom fram að neikvæð reynsla á vinnustað getur haft áhrif á sjálfstraust innflytjenda. Það er þó mikilvægt að taka fram að þetta á ekki við um alla innflytjendur. Ég var búin að lesa mér töluvert til um efnið áður en ég hóf rannsóknina, þannig að niðurstöðurnar komu mér ekki mikið á óvart. Það sem kom mér þó mest á óvart var hvernig sumir viðmælendurnir lýstu framkomunni sem þeir höfðu upplifað á vinnustöðum. Ég hafði vonað og trúað að við værum komin lengra sem samfélag þegar kemur að því að koma fram við fólk af virðingu og jafnræði.“

Fimm konur með sömu byrjun

Allar konurnar fimm sem Karla ræddi við byrjuðu starfsferil sinn á Íslandi í ræstingum eða sambærilegum láglaunastörfum. Margar þeirra hófu störf á hótelum.

Þær sögðu almennt ekki hafa verið erfitt að finna einhverja vinnu. Mun erfiðara hefði hins vegar reynst að komast í störf sem hæfðu menntun þeirra, starfsreynslu og getu.

„Ég upplifði það þannig að þegar maður vill vinna finnur maður sér alltaf vinnu,“ segir Anna.

Vandinn var hins vegar sá að sömu störfin virtust standa erlendu konunum til boða aftur og aftur. Anna og Bríet voru þær sem sögðust hafa fundið mest fyrir kynþáttafordómum. Þær voru jafnframt þær best menntuðu í hópnum og höfðu hvor um sig lokið að minnsta kosti tveimur háskólagráðum. Menntunin virtist þó ekki opna þær dyr sem þær höfðu vonast eftir.

Var í átján ár í sama starfinu

Bríet festist í fyrsta starfinu sem hún fékk eftir komuna til Íslands og vann á sama vinnustað í rúmlega átján ár.

Hún hafði ítrekað bent yfirmanni sínum á menntun sína og sagt að hún gæti tekið að sér meiri ábyrgð. Það leiddi ekki til breytinga. Hún lýsir vinnustað þar sem hámenntað fólk af erlendum uppruna sinnti ræstingum. Þar hafi meðal annars starfað maður frá Frakklandi sem var með meistaragráðu í heimspeki.

Hún segir stjórnendur hafa sóst sérstaklega eftir nýkomnum innflytjendum í ræstingar þar sem þeir væru ódýrara vinnuafl.

„Þeir vilja frekar útlendinga í ræstingar, það er enginn frá Íslandi. Þeir vilja frekar fólk sem er nýtt á Íslandi því það er ódýrara.“

Að sögn Bríetar var erlenda starfsfólkið ekki aðeins sett í ákveðin störf heldur einnig haldið utan við félagsleg tengsl á vinnustaðnum. Hún segir samstarfsfólk og viðskiptavini stundum hafa talað um erlendu starfsmennina fyrir framan þá, líkt og þeir væru ekki viðstaddir eða gætu ekki skilið það sem sagt var.

„Verður örugglega ólétt“

Konurnar sögðu grófustu fordómana hafa birst á fyrstu vinnustöðum sínum á Íslandi. Þá töluðu þær minni íslensku, þekktu síður réttindi sín og höfðu takmarkaðri möguleika á að færa sig yfir í önnur störf.

Emma rifjar upp fyrsta vinnustað sinn, hótel þar sem allir starfsmennirnir voru íslenskir karlmenn.

Áður en hún hóf störf hafði einn þeirra rætt um hana við systur hennar.

„Fyrsta þegar hann sagði við mig og systur mína, þegar systir mín var með mér, bara: „Já, ef hún byrjar að vinna hér verður hún örugglega ólétt eftir stuttan tíma.“

Í ritgerðinni kemur fram að áreitni karlkyns starfsmanna gagnvart konunum hafi verið áberandi á sumum vinnustöðum. Lítið eða ekkert hafi verið brugðist við hegðuninni. Stundum virtist ríkja það viðhorf að konurnar ættu erfitt með að leita annað, enda útlendingar sem töluðu takmarkaða íslensku.

Þær stóðu því frammi fyrir vali sem var í raun ekkert sérstakt val: Að sætta sig við aðstæðurnar eða hætta á að missa lífsviðurværið.

„Sjálfstraustið fór niður“

Langvarandi vanmat hafði áhrif á það hvernig konurnar litu á eigin getu.

Bríet segir sjálfstraust sitt hafa minnkað eftir að hafa verið árum saman í starfi þar sem menntun hennar og reynsla var ekki metin.

„Sjálfstraustið mitt minnkaði. Það var líka vegna þess að ég var svo lengi þarna inni. Ég hafði enga trú á sjálfri mér.“

Fleiri konur úr hópnum lýstu þeirri tilfinningu að þær þyrftu að vinna meira en íslenskt samstarfsfólk til að fá sömu viðurkenningu. Þær þurftu ekki aðeins að sinna starfinu heldur einnig að sanna dag eftir dag að þær ættu skilið að vera þar.

„Mér finnst ég alltaf þurfa að gera betur af því að ég er útlendingur. Ég þarf alltaf að sýna, þú veist, að ég geti þetta,“ segir Emma.

Konurnar töldu erlenda starfsmenn oftar fá aukaverkefni og bera meira vinnuálag. Þeir voru taldir ólíklegri til að mótmæla eða segja nei.

Verkefnin sem Íslendingarnir neituðu

Anna segir yfirmenn hafa falið erlendum starfsmönnum verkefni sem þeir hefðu síður beðið íslenskt starfsfólk um að vinna.

„Yfirmenn myndu ekki spyrja Íslendinga að fara að gera þetta af því að Íslendingar kunna að segja nei. Íslendingar myndu mjög líklega segja: „Nei, ég ætla ekki að gera þetta. Þetta er ekki í mínum verkahring.“

Anna hafði ekki fasta starfsstöð líkt og íslenskir samstarfsmenn hennar. Hún var þess í stað send á milli staða eftir því hvar þurfti að vaska upp, þrífa eða sinna öðrum verkefnum sem þóttu síður eftirsóknarverð.

Hún segir óttann við að missa vinnuna hafa gert henni erfitt fyrir að setja mörk.

„Ég hugsaði það oft þannig að ég væri þakklát fyrir að hafa fengið vinnu. Ég ætti bara að halda kjafti og vera þakklát.“

Í ritgerðinni er bent á að aðstæður sem þessar geti skapað vítahring. Þegar starfsmaður upplifir endurtekið vanmat minnkar sjálfstraustið. Hann treystir sér síður til að mótmæla og tekur áfram að sér verkefni utan starfslýsingar vegna ótta við atvinnumissi. Þannig verður þögnin smám saman hluti af vinnunni.

Íslenskan breytti öllu

Íslenskukunnátta reyndist einn skýrasti áhrifaþátturinn í reynslu kvennanna.

Ásta og Dóra, yngstu þátttakendurnir, sögðust ekki hafa orðið fyrir kynþáttafordómum á vinnustað. Báðar höfðu náð mjög góðum tökum á íslensku.

Dóra segir tungumálið ráða miklu um það hvort starfsmaður verði hluti af hópnum eða standi utan hans.

„Það er allt öðruvísi þegar þú lærir tungumálið. Það skiptir miklu máli hvort þú talar íslensku eða ekki. Ef þú talar ekki íslensku eða talar ekki nógu vel þá líður mér eins og ég sé ekki partur af hópnum.“

Ásta taldi útlit sitt einnig hafa áhrif á reynslu sína. Hún sagðist mögulega hafa sloppið við kynþáttafordóma þar sem hún væri ekki dökk á hörund. Hún lýsti þó yfirmanni sem gerði skýra kröfu um að hún lærði íslensku. Yfirmaðurinn hefði hjálpað henni með einfaldari orðum, bendingum og blöðum í stað þess að skipta samstundis yfir í ensku.

„Hún vildi að ég myndi nota öðruvísi setningar, einfaldari orð, nota hendurnar og sýna mér með blöðum í staðinn fyrir að láta mig bara skipta yfir á ensku.“

Reynsla Emmu var allt önnur.

Þegar hún hóf störf talaði hún litla íslensku og segir ekki alla hafa sýnt henni þolinmæði eða viljað hjálpa henni að læra.

„Það voru sumir sem voru bara, þegar þeir voru reiðir: „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt.“

Virðingin kom með betri íslensku

Með aukinni menntun, starfsreynslu og betri íslenskukunnáttu breyttist viðmótið gagnvart sumum kvennanna.

Anna segir mun meiri virðingu vera borna fyrir henni nú en þegar hún hóf störf á Íslandi.

„Núna er ég með meiri reynslu og menntun og betri íslensku. Þá finnst mér ég fá alveg virðingu frá yfirmönnum.“

Niðurstöðurnar benda þannig til þess að góð íslenskukunnátta geti dregið úr fordómum og auðveldað erlendu starfsfólki að mynda tengsl á vinnustaðnum. Á sama tíma vekur það spurningar um hvers vegna virðing og sanngjörn framkoma virðast í sumum tilvikum háð því hversu vel starfsmaður talar íslensku.

Vissu að hægt væri að kvarta en gerðu það ekki

Allar konurnar sögðust vita að hægt væri að tilkynna áreitni eða kynþáttafordóma á vinnustað. Þær voru hins vegar óvissar um hvar skriflegar verklagsreglur væri að finna og hvað myndi gerast eftir að kvörtun væri lögð fram. Sumar tilkynntu ekki atvikin þar sem þær höfðu litla trú á að gripið yrði til aðgerða. Aðrar treystu sér ekki til þess vegna skerts sjálfstrausts eða ótta við að missa vinnuna.

Þær sem kvörtuðu fengu í sumum tilvikum loforð um að eitthvað yrði gert. Þeim loforðum var ekki alltaf fylgt eftir.

Í einu tilfelli var þó starfsmanni sem kvörtun beindist að sagt upp.

Engin kvennanna sagðist hafa hætt í starfi beinlínis vegna kynþáttafordóma. Það þýðir þó ekki að fordómarnir hafi ekki haft áhrif. Þeir birtust í verkefnunum sem þær fengu, tækifærunum sem þær fengu ekki, tengslunum sem mynduðust ekki og þeirri trú að þær mættu ekki gera athugasemdir.

Ekki aðeins einstök leiðindi

Í niðurstöðum rannsóknarinnar kemur fram að kynþáttafordómar á íslenskum vinnustöðum séu sjaldnast beinir, heldur komi þeir helst fram í duldu formi, einkum í formi öráreitis. Þá er bent á mikilvægi þess að vinnustaðir móti skýr tilkynningarferli sem er auðvelt að nálgast og efli fræðslu sem stuðlar að virðingarríkri vinnumenningu. Auk þess þurfi að taka til greina að tungumál sem og menning geta skapað áskoranir fyrir einstaklinga af erlendum uppruna. Mikilvægt sé því að sýna þessum viðkvæma hópi virðingu og þolinmæði í samskiptum.

„Haldist þessi staða óbreytt er hætta á að traust skerðist, ásamt því að starfsánægja minnkar og starfsmannavelta meðal innflytjenda eykst verulega. Það getur haft alvarlegar afleiðingar á íslenskan vinnumarkað.“

Þrátt fyrir að rannsóknir hafi sýnt fram á að innflytjendur mæti ýmsum hindrunum í opinbera kerfinu og á vinnustöðum hefur lítið verið gert til að koma í veg fyrir frekari mismunun.

„Mikilvægt er að grípa til aðgerða sem stuðla að meiri jöfnuði fyrir alla en ekki bara greina vandamálið. Ísland þróast með hverjum degi í mun fjölbreyttara samfélag og eru innflytjendur mikilvægur hluti þess. Því er nauðsynlegt að taka á þessum málum með opnum huga og að skapa umhverfi sem tryggir að allir komist að og séu virtir innan samfélagsins.“

#ekki #helvítis #skilja #útlendingar #þessir


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262911447d/-thessir-helvitis-utlendingar-skilja-ekki-neitt-

📰 Aðrar fréttir

Saman í 11 ár en búa ekki saman - Þetta er ástæðan
📅 22.10.2026 👁️ 0
Saman í 11 ár en búa ekki saman - Þetta er ástæðan
Leikkonurnar Holland Taylor (83) og Sarah Paulson (419 hafa verið saman í 11 ár, en hafa aldrei búið saman. Taylor, sem er þekktust fyrir hlutverk sit...
Vilhelm Jónsson skrifar: Skóflustungan er ókeypis – reikningurinn ekki
📅 22.10.2026 👁️ 0
Vilhelm Jónsson skrifar: Skóflustungan er ókeypis – reikningurinn ekki
Það er alltaf hátíð þegar íslenskir stjórnmálamenn taka fyrstu skóflustunguna að nýrri stórframkvæmd.Ráðherrann mætir, ljósmyndararnir smella af og fr...
Segir flugeldasöluna ekki í hættu - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 0
Segir flugeldasöluna ekki í hættu - Vísir
Björgunarsveitin hefur óskað eftir að bærinn greiði um 125 milljóna króna viðbyggingu við húsnæði hennar að Hvaleyrarbraut 32. Sveitin segir fyrirhuga...
Framsóknarmenn vilja að leyft verði að skjóta álftir – „Við óbreytt ástand verður ekki unað“
📅 22.10.2026 👁️ 0
Framsóknarmenn vilja að leyft verði að skjóta álftir – „Við óbreytt ástand verður ekki unað“
Samkvæmt nýrri þingsályktunartillögu Þórarins Inga Péturssonar, Framsóknarmanns, verður leyft að veiða álftir á ákveðnu tímabili. En álftir eru friðað...
Til­kynning um kæru ó­skýr og Bandero fer ekki fet - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 0
Til­kynning um kæru ó­skýr og Bandero fer ekki fet - Vísir
Þetta var niðurstaða Héraðsdóms Vesturlands, sem kvað upp frávísunarúrskurð í máli Atlantic Marine Industries LLC á hendur Hval Hf, vegna kyrrsetninga...
Mál sonar þing­mannsins komið til héraðssaksóknara - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 0
Mál sonar þing­mannsins komið til héraðssaksóknara - Vísir
Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson varahéraðssaksóknari í samtali við fréttastofu. Gæsluvarðhald mannsins rennur út í dag en segir Karl Ingi að an...
Alma vill bæta eftirlit með lyfjagjöf til eldra fólks
📅 22.10.2026 👁️ 0
Alma vill bæta eftirlit með lyfjagjöf til eldra fólks
Heilbrigðisráðherra vill bæta eftirfylgni með lyfjameðferð eldra fólks. Hún segir mikilvægt að leita orsaka og reyna önnur úrræði hjá öldruðum áður en...
„Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 0
„Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ - Vísir
„Þetta er stórkostlegt afrek, öll þessi vinna sem hefur farið fram í starfsnefnd hjá embætti landlæknis og góð vinna og að mér skilst í fyrsta skipti ...
Trump ordered to answer questions under oath in BBC lawsuit
📅 22.10.2026 👁️ 0
Trump ordered to answer questions under oath in BBC lawsuit
Trump is suing the BBC over an episode of Panorama that edited together two different sections of a speech he gave in 2021.
Kristnir sæta vaxandi ofsóknum í Kína – handtökur, kirkjulokanir og eftirlit kommúnistastjórnarinnar
📅 22.10.2026 👁️ 3
Kristnir sæta vaxandi ofsóknum í Kína – handtökur, kirkjulokanir og eftirlit kommúnistastjórnarinnar
Kristnir sæta vaxandi ofsóknum í Kína – handtökur, kirkjulokanir og eftirlit kommúnistastjórnarinnar Fréttin22. október 2026Erlent, Mannréttindi, Trúm...
Bresk lyfjayfirvöld afturkalla leyfi bóluefnis eftir alvarlegar aukaverkanir og tilkynningar um dauðsföll
📅 22.10.2026 👁️ 3
Bresk lyfjayfirvöld afturkalla leyfi bóluefnis eftir alvarlegar aukaverkanir og tilkynningar um dauðsföll
Bresk lyfjayfirvöld afturkalla leyfi bóluefnis eftir alvarlegar aukaverkanir og tilkynningar um dauðsföll Fréttin22. október 2026Bólusetningar, Erlent...
Ætlaði að skríða í þrjá daga en horfir fram á sex - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ætlaði að skríða í þrjá daga en horfir fram á sex - Vísir
Vísir fjallaði á þriðjudaginn um þennan gjörning Axels sem ákvað að sýna í beinu streymi á TikTok frá sér skríða frá Njarðvík til Bessastaða þar sem h...
Skaddaður á höndunum og alla­vega þrír dagar eftir - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 0
Skaddaður á höndunum og alla­vega þrír dagar eftir - Vísir
Vísir fjallaði á þriðjudaginn um þennan gjörning Axels sem ákvað að sýna í beinu streymi á TikTok frá sér skríða frá Njarðvík til Bessastaða þar sem h...
Streeting: Prepare for supply chain disruption from cyber or climate emergencies
📅 22.10.2026 👁️ 0
Streeting: Prepare for supply chain disruption from cyber or climate emergencies
The defence secretary warned the public and businesses needed to think about how they would cope with natural disasters and cyber attacks.
Hættir við að af­létta ráðningarbanni vegna manndráps - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Hættir við að af­létta ráðningarbanni vegna manndráps - Vísir
Þetta kemur fram í svari félags- og húsnæðismálaráðuneytisins við fyrirspurn Vísis. Vísir greindi frá áformunum á þriðjudag, en Einhverfusamtökin höfð...
Félag atvinnurekenda mótmælir leigubremsu á atvinnuhúsnæði - „Hyggjast skerða samningsfrelsi“
📅 22.10.2026 👁️ 3
Félag atvinnurekenda mótmælir leigubremsu á atvinnuhúsnæði - „Hyggjast skerða samningsfrelsi“
Félag atvinnurekenda (FA) gerir alvarlegar athugasemdir við að fyrirhuguð leigubremsa muni einnig ná til atvinnuhúsnæðis. Engin fullnægjandi rök hafi ...
Newborn twins fight for survival as conflict fuels Yemen's hunger crisis
📅 22.10.2026 👁️ 0
Newborn twins fight for survival as conflict fuels Yemen's hunger crisis
Raghad and Raad's family had to flee their home on foot because of the fighting between pro-government forces and the Houthis.
Öflugur jarðskjálfti af stærð 7,0 skekur Tíbet – óttast umfangsmikið tjón
📅 22.10.2026 👁️ 3
Öflugur jarðskjálfti af stærð 7,0 skekur Tíbet – óttast umfangsmikið tjón
Öflugur jarðskjálfti af stærð 7,0 skekur Tíbet – óttast umfangsmikið tjón Fréttin22. október 2026ErlentLeave a Comment Öflugur jarðskjálfti af stærð 7...
Hafa ekki hugmynd um útbreiðslu ólöglegra peptíða
📅 22.10.2026 👁️ 3
Hafa ekki hugmynd um útbreiðslu ólöglegra peptíða
Engin gögn eru til um hversu útbreidd notkun ólöglegra peptíða er hér á landi. Efnagreining á stórri sendingu sem Tollgæslan haldlagði frá Kína leiddi...
Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingju­söm? - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingju­söm? - Vísir
Fundurinn fer fram í Hátíðarsal HÍ frá klukkan fjögur til fimm. Halla og Sunstein munu sérstaklega ræða hvernig sjónarmið ungs fólks geta mótað stafræ...
Ekki krónu varið í bókakaup á nokkrum leikskólum
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ekki krónu varið í bókakaup á nokkrum leikskólum
Til eru leikskólar hér á landi þar sem ekki er gert ráð fyrir að krónu sé varið til bókakaupa vegna fjárskorts. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem G...
Vill bæta eftir­lit með lyfjagjöfum aldraðra - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Vill bæta eftir­lit með lyfjagjöfum aldraðra - Vísir
Málið var tekið upp á Alþingi í dag í kjölfar umfjöllunar fréttaskýringaþáttanna Kompáss um umfang svefnlyfjanotkunar og Kveiks um lyfjanotkun aldraðr...
Starmer gæti þurft að bera vitni vegna nauðgunargengja í rannsókn sem hann fyrirskipaði sjálfur
📅 22.10.2026 👁️ 3
Starmer gæti þurft að bera vitni vegna nauðgunargengja í rannsókn sem hann fyrirskipaði sjálfur
Keir Starmer, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, gæti þurft að bera vitni fyrir rannsóknarnefndinni sem hann sjálfur boðaði til að rannsaka pakis...
Finnskir hvolpar í beinni útsendingu slá í gegn
📅 22.10.2026 👁️ 3
Finnskir hvolpar í beinni útsendingu slá í gegn
Pentulive er komið í loftið í sjötta sinn hjá finnska ríkissjónvarpinu Yle og viðbúið er að áhorfsmet falli. Yfir sex milljónir hafa þegar horft á Pen...
Pútín, Xi og Trump gætu átt „sögulegan leiðtogafund“
📅 22.10.2026 👁️ 3
Pútín, Xi og Trump gætu átt „sögulegan leiðtogafund“
Pútín, Xi og Trump gætu átt „sögulegan leiðtogafund“ Fréttin22. október 2026ErlentLeave a Comment Júrí Úshakov. Vladimír Pútín Rússlandsforseti, Xi Ji...
Civil servant who juggled five jobs 'wasn't thinking straight'
📅 22.10.2026 👁️ 0
Civil servant who juggled five jobs 'wasn't thinking straight'
Kashim Chowdhury is accused of fraudulently juggling multiple public sector jobs.
Fjar­vera Þor­gerðar á pari við for­vera hennar - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Fjar­vera Þor­gerðar á pari við for­vera hennar - Vísir
Þetta kemur fram í skriflegu svari utanríkisráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu. Samkvæmt útreikningi fréttastofu nemur meðaltal fjarveru utanrík...
Oddur Thorarensen Stefánsson skrifar: Hver ber ábyrgð á árunum sem tapast?
📅 22.10.2026 👁️ 3
Oddur Thorarensen Stefánsson skrifar: Hver ber ábyrgð á árunum sem tapast?
Skólaár byrjar og endar. Næsta skólaár tekur við. Fyrir þann sem bíður eftir nauðsynlegri aðstoð getur þetta þýtt að enn eitt tækifærið líður hjá. Þeg...
Flóttamaður með þrjú nöfn fór huldu höfði eftir nauðgunarákæru – Fingraför komu upp um hann á Keflavíkurflugvelli
📅 22.10.2026 👁️ 2
Flóttamaður með þrjú nöfn fór huldu höfði eftir nauðgunarákæru – Fingraför komu upp um hann á Keflavíkurflugvelli
Meintur nauðgari hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 19. október, en hann hafði verið í felum til að sleppa annars vegar undan ákæru fyrir kyn...
Vilja af­sökunar­beiðni frá Kim vegna jarð­sprengju - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Vilja af­sökunar­beiðni frá Kim vegna jarð­sprengju - Vísir
Yfirvöld í Suður-Kóreu ætla að senda bréf til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna þar sem kallað verður eftir því að ráðamenn í Norður-Kóreu biðjist afsöku...
White Lotus-stjarna bætist í leik­hópinn - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
White Lotus-stjarna bætist í leik­hópinn - Vísir
Bransamiðillinn Hollywood Reporter greinir frá ráðningunni. Spennumyndin Hafið er svart (Dark Ocean á ensku) er framleidd af Glassriver en Baldvin Zop...
Væri eðlilegast að draga umsókn til baka en er ekki á stefnuskránni
📅 22.10.2026 👁️ 3
Væri eðlilegast að draga umsókn til baka en er ekki á stefnuskránni
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segist ekki ætla að styðja þingsályktunartillögu formanna stjórnarandstöðuflokkanna um að draga formlega til ba...
Síminn stoppar ekki vegna heimildar­myndar - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Síminn stoppar ekki vegna heimildar­myndar - Vísir
Myndin er úr smiðju bandaríska sjónvarpsmannsins Nathan Fielder sem gert hefur garðinn frægan með sjónvarpsþáttunum Nathan For You og síðast The Rehea...
Six months of overnight roadworks to begin on the TF-1 this Sunday
📅 22.10.2026 👁️ 3
Six months of overnight roadworks to begin on the TF-1 this Sunday
Night-time traffic restrictions are due to begin on the TF-1 this Sunday, 25th October, as the Tenerife Cabildo starts a six-month programme to resurf...
Gríðar­leg sjúkdómsbyrði meðal niður­staðna - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Gríðar­leg sjúkdómsbyrði meðal niður­staðna - Vísir
Skýrsla vinnuhóps sem Alma Möller heilbrigðisráðherra skipaði í ágúst 2025 var birt í dag. Markmið hópsins var að fjalla um fyrirkomulag heilbrigðisþj...
Caroline Flack's brother never recovered, inquest hears
📅 22.10.2026 👁️ 0
Caroline Flack's brother never recovered, inquest hears
Paul Flack was "everyone's favourite person" but this "took its toll", an inquest hears.
Eftir­sjá að Eggerti: „Lífið heldur á­fram“ - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Eftir­sjá að Eggerti: „Lífið heldur á­fram“ - Vísir
Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, segir stofnunina hafa viljað halda Eggerti áfram. Vísir greindi frá ráðningu h...
Kempa leik­stýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Kempa leik­stýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra - Vísir
Bransamiðillinn Deadline greinir frá tíðindunum. Stóri bróðir/Vigilant er samevrópskt samstarfsverkefni íslenska framleiðslufyrirtækisins ACT4, streym...
Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifs­stöð - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifs­stöð - Vísir
Þetta segir í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur, sem kveðinn var upp þann 19. október og staðfestur af Landsrétti í gær. Í honum segir að í greinargerð ...
Opnað fyrir tilnefningar til Viðurkenninga FKA - Þú getur tekið þátt í valinu
📅 22.10.2026 👁️ 4
Opnað fyrir tilnefningar til Viðurkenninga FKA - Þú getur tekið þátt í valinu
Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til Viðurkenninga FKA 2027. Atvinnulífið og almenningur eru hvött til að tilnefna konur sem hafa skarað fram úr, ...
Afhjúpar átakanlegan veruleika að baki brúðkaupsþætti Friends
📅 22.10.2026 👁️ 4
Afhjúpar átakanlegan veruleika að baki brúðkaupsþætti Friends
Systir Matthew Perry sagði að hinn frægi þáttur Friends, þar sem persóna hans, Chandler, gengur að eiga Monicu, hafi verið fjölskyldu Perry bæði gleði...
Svarthöfði skrifar: Tók þá fjallið jóðsótt og fæddist lítil mús
📅 22.10.2026 👁️ 4
Svarthöfði skrifar: Tók þá fjallið jóðsótt og fæddist lítil mús
Ekki er laust við að margir hafi hreinlega verið búnir að gleyma Sigurði Inga Jóhannssyni, fyrrverandi formanni Framsóknar. Ugglaust héldu margir að h...
Landsnet og landeigendur ræða aftur saman um Holtavörðuheiðarlínu 1
📅 22.10.2026 👁️ 4
Landsnet og landeigendur ræða aftur saman um Holtavörðuheiðarlínu 1
Landsnet hefur tilkynnt landeigendum á fyrirhugaðri leið Holtavörðuheiðarlínu 1 að viðræður um bætur fyrir land hefjist að nýju á næstunni.Landsnet he...
Landsnet vill ræða aftur við landeigendur um Holtavörðuheiðarlínu 1
📅 22.10.2026 👁️ 3
Landsnet vill ræða aftur við landeigendur um Holtavörðuheiðarlínu 1
Landsnet hefur tilkynnt landeigendum á fyrirhugaðri leið Holtavörðuheiðarlínu 1 að viðræður um bætur fyrir land hefjist að nýju á næstunni.Landsnet he...
Dóttir Kol­brúnar skrifar undir harða við­vörun um leigu­bremsuna - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Dóttir Kol­brúnar skrifar undir harða við­vörun um leigu­bremsuna - Vísir
Karen Áslaug Vignisdóttir, framkvæmdastjóri hagfræði og peningastefnu hjá Seðlabankanum, undirritar umsögn bankans ásamt Flóka Halldórssyni, framkvæmd...
Úkraínskur maður handtekinn í Þýskalandi grunaður um njósnir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Úkraínskur maður handtekinn í Þýskalandi grunaður um njósnir
Úkraínskur maður handtekinn í Þýskalandi grunaður um njósnir Alrík­is­sak­sókn­ari segir mann­inn hafa aflað upp­lýs­inga um fram­leiðslu bryn­var­inn...
Ilhan Omar says 'bizarre' pre-dawn raid on her home is forcing her to move out
📅 22.10.2026 👁️ 4
Ilhan Omar says 'bizarre' pre-dawn raid on her home is forcing her to move out
The congresswoman said federal agents seized over a dozen items, including cell phones and notebooks, as part of a federal investigation.
Maður sem vísa átti úr landi settur í gæsluvarðhald svo hann flýi ekki land
📅 22.10.2026 👁️ 3
Maður sem vísa átti úr landi settur í gæsluvarðhald svo hann flýi ekki land
Landsréttur staðfesti í gær gæsluvarðhald til 16. nóvember yfir karlmanni sem er grunaður um nauðgun. Hann hefur játað sök að hluta. Illa hefur gengið...
Á­rásir hófust áður en gallarnir voru lag­færðir - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Á­rásir hófust áður en gallarnir voru lag­færðir - Vísir
Alvarlegir veikleikar fundust í PHP-forritunarmálinu sem er notað fyrir um sjötíu prósent vefsíðna heimsins. Vegna gallanna var fjölmörgum vefsíðum lo...
Ætlar að halda þing­sætinu þrátt fyrir rann­sókn á svikum - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ætlar að halda þing­sætinu þrátt fyrir rann­sókn á svikum - Vísir
Sænsk yfirvöld rannsaka enn tilraunir hóps manns til þess að kaupa atkvæði í Dölunum í Norður-Svíþjóð í þingkosningunum sem fóru fram í síðasta mánuði...