Þekktur íslenskur maður ákærður fyrir þjófnað á plokkfiski

PlokkfiskurMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Hafið
Þekktur íslenskur karlmaður hefur verið ákærður fyrir tvo þjófnaði á höfuðborgarsvæðinu og verður mál hans þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í nóvember.
Samkvæmt ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu er maðurinn sakaður um að hafa, ásamt öðrum aðila, stolið að minnsta kosti 25 flíkum úr gámi við verslunina Zo-On í Urðarhvarfi í Kópavogi í júní 2024. Verðmæti fatnaðarins er óþekkt.
Þá er honum einnig gefið að sök að hafa stolið plokkfiski úr verslun Krónunnar við Borgartún í Reykjavík í febrúar 2025. Plokkfiskurinn var að verðmæti 1.699 krónur.
Ákæruvaldið krefst þess að maðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar vegna málsins.