Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir sér þykja nauðsynlegt að skýra lög og reglur um fjármögnun kosningabaráttna í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu.
Mér þætti nauðsynlegt að gera það fyrir næstu þjóðaratkvæðagreiðslu, hvenær svo sem hún verður, svo að við séum þá tilbúin með umgjörð sem nær betur utan um þennan veruleika. Það er að segja þegar við erum í kosningabaráttu þar sem þetta eru ekki bara flokkarnir sem beita sér heldur ýmsir aðilar aðrir.
Hún sjái fyrir sér að það verði samtal á þinginu sem hefst í næstu viku, þó það verði kannski ekki strax á fyrstu dögunum eftir atkvæðagreiðsluna. Að hennar mati sé þetta samtal liður í umræðum utanríkismálanefndar um nýyfirstaðna þjóðaratkvæðagreiðslu.
Mikilvægt sé að nálgast verkefnið af yfirvegun enda eigi umgjörð kosninga að vera til þess fallin að auka tiltrú almennings á verklaginu.
„Það eru engar breytingar á þingmálaskránni núna en augljóst að það þarf að horfa til þess hvernig við náum utan um þjóðaratkvæðagreiðslur, hvenær svo sem sú næsta verður, af því við vitum það auðvitað að það er ekki önnur þjóðaratkvæðagreiðsla um þetta mál.“
Stjórnvöld bíða nú eftir skýrslu Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu, ÖSE, sem hafði eftirlit með atkvæðagreiðslunni. Þar verða einhverjar ábendingar og sjónarmið frá stofnuninni.
Við höfum áður fengið þá niðurstöðu frá þeim áður að í stóru myndinni sé fullt traust borið til íslenskra stjórnvalda.