Það er ein tegund af buxum sem munu slá í gegn í sumar, bæði fyrir þægindi og útlit. Þetta eru gömlu góðu íþróttabuxurnar og getur þú fjárfest í tveimur mismunandi útgáfum, stuttbuxum eða síðbuxum.
Það sem einkennir buxurnar er yfirleitt lína niður hliðina, sem gefur þér íþróttalegt útlit, og þú lítur út fyrir að vera nýkomin af æfingu þótt það sé ekki raunin.
Það hefur einnig verið vinsælt á meðal tískuáhrifavalda um heim allan að klæðast þessum buxum við háhælaða sandala og það virkar vel. Það er einnig töff að klæðast litlum partítoppum, stífum skyrtum og sandölum við.
Þessum verður þú að bæta við fataskápinn.





