Sannkallað vorhret gengur yfir á Norðaustur- og Austurlandi og að því er fram kemur á vef Vegagerðarinnar er þæfingsfærð á Fjarðarheiði og krapi og éljagangur eru á Hringveginum við Jökulá á Dal.
Þá er varað við hálku á Öxi og Breiðdalsheiði og flughálku í Langadal á Möðrudalsöræfum. Snjóþekja er á Hófaskarði og Háreksstaðaleið og hálka er á Vopnafjarðarheiði, Sandvíkurheiði, Brekknaheiði og Raufarhafnarvegi.
Veðurspáin gerir ráð fyrir slyddu og snjókomu og hitastigi um frostmark á Norðausturlandi og Austurlandi í dag og eru gular viðvaranir í gildi fram á kvöld á Norðurlandi eystra, Austurlandi að Glettingi, á Austfjörðum og miðhálendinu. Aðstæður á fjallvegum gætu orðið varasamar fyrir ökutæki á sumardekkjum.