Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, segist hlakka til að veita alvöru aðhald á komandi kjörtímabili. „Ég óska verðandi borgarstjóra og nýjum meirihluta til hamingju. Ég held þau taki við góðu búi. Við munum styðja góð mál með bros á vör og jafnframt veita kröftugt aðhald í málum sem við teljum að þurfi að gera,“ segir hann.
Hefur áhyggjur af Borgarlínunni
Pétur kveðst þó hafa áhyggjur af fyrirhuguðum vinnustaðaleikskólum og breyttri stefnu nýs meirihluta í samgöngumálum. „Nýr meirihluti hefur boðað að það eigi að endurskoða samgöngusáttmálann. Mér finnst það boða meiri tafir og meiri umferð,“ segir hann.
Sjálfur segist hann hafa áhyggjur af Borgarlínuverkefninu. „Ég hef áhyggjur af því að það að taka upp samgöngusáttmálann boði meiri tafir. Þetta er á fleygiferð. Það að stærsti aðilinn fyrir utan ríkið í þessum sáttmála ætli að endurskoða samgöngusáttmálann og skilja hin sveitarfélögin eftir finnst mér umhugsunarvert.“
Hildur Björnsdóttir, verðandi borgarstjóri, sagði fyrr í dag að eitt forgangsverkefni yrði að skoða stofnun vinnustaðaleikskóla. „Það finnst mér hættuleg vegferð,“ segir Pétur sem geldur varhug við því að til verði tvöfalt kerfi í málaflokknum.
Honum þykir að sama skapi hættulega vegferð hafa verið boðaða í húsnæðismálum. „Að þau ætli að hætta að styðja við óhagnaðardrifin húsnæðisfélög. Það verður nóg að gera hjá okkur í minnihlutanum, það er ekki spurning.“