Grunnskólar voru settir víða í morgun. Skólaárið er hafið en ekki liggur fyrir hvernig námsmatið verður. Tölustafir taka við af bókstöfum en kerfið verður annað en það sem fólk vandist áður.
Jóhann Skagfjörð Magnússon, skólastjóri í Garðaskóla í Garðabæ, segir það áskorun að innleiða nýtt námsmatskerfi og að framkvæmdin liggi ekki fyrir fyrr en rúmlega fjórðungur verður liðinn af skólaárinu.
„Við fengum þær fréttir skömmu eftir verslunarmannahelgi að menntamálaráðherra væri búin að gefa það út að við ættum að útskrifa nemendur í tíunda bekk með tölustafaeinkunn í vor en ekki með bókstöfum eins og við höfum notað undanfarin ár.“
Hann sagði stöðuna ekki hafa skýrst á kynningarfundi með ráðuneytinu snemma í ágúst því framkvæmdin og útfærslan liggja ekki fyrir.
„Það veit enginn almennilega hvernig á að gera þetta. Sem leikmaður myndirðu kannski halda að þetta væri einföld aðgerð en aðalnámskráin er einfaldlega skrifuð með bókstafi í huga. Þetta er því töluverð vinna og mikil óvissa sem fylgir því að fara inn í veturinn án þess að vita nákvæmlega hvernig námsmati eigi að vera háttað.“
Jóhann segir að samráðsfundir með Miðstöð menntunar og skólaþjónustu eigi að hefjast í vikunni. Þeir fundir standa yfir til 15. október.
„Ef við gefum okkur að þá þurfi MMS einhverja nokkra daga, jafnvel eina til tvær vikur, til þess að taka saman og skrifa endanlega niður útfærsluna á þessu þá er liðinn fjórðungur af skólaárinu.“
Jóhann segir að talnakvarðinn sem sé búið að kynna skólunum sé ekki sá sami og fólk kannist við frá einum upp í tíu. „Þetta er allt annað mál.“