„Það er ekki hægt að selja umbúðirnar endalaust“
Prófessor emeritus í fjölmiðlafræði segir vanta meiri ábyrgð hjá eigendum fjölmiðla líkt og þekktist áður. Ráðherra segir það flókið mál að skattleggja auglýsingatekjur til erlendra samfélagsmiðla.
„Meðal þess sem vantar er ábyrgari eigendamenning fyrir fjölmiðla,“ segir Birgir Guðmundsson, prófessor emerítus í fjölmiðlafræði við Háskóla Akureyrar, þegar staða fjölmiðla er skoðuð í ljósi fregna af því að framleiðslu sjónvarpsfrétta á Sýn hefur verið hætt.
Fram kemur í greiningu Hagstofunnar sem birtist í apríl – og nær til árabilsins 2010 til 2024 – að hlutfallsleg skipting fjölmiðlatekna sjónvarps í íslenskri fjölmiðlaflóru er 55 prósent. Af 30,3 milljarða króna tekjum fjölmiðla 2024 féllu tæpir 8,7 milljarður króna til Ríkisútvarpsins á móti 21,6 milljörðum króna til einkarekinna fjölmiðla. Þar af fóru 88% fjölmiðlatekna til fimm rekstraraðila, þar með talið RÚV.
Sjónvarpið haldið sínum hlut ólíkt dagblöðum
Ólíkt dag- og vikublöðum hefur sjónvarp vaxið á þessu fjórtán ára tímabili og stendur sterkt miðað við aðra fjölmiðlun. Á einum og hálfum áratug hafa tekjur dag- og vikublaða minnkað um 34%. Munar þar mestu um …