Þetta kom fram við setningu ASÍ þings á Hilton hóteli í morgun þar sem Tómas Arnar Þorláksson ræddi við Höllu. Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar hefur sakað hana um að ætla að sölsa undir sig ASÍ með tillögu um fækkun varaforseta ASÍ úr þremur í einn. Halla segir að þingið snúist um framtíð vinnu og verkalýðsbaráttu, átök hafi alltaf einkennt verkalýðshreyfinguna.
Erjur og deilur hafa sett sinn svip á síðustu daga fyrir þingið. Sólveig Anna hefur átt í orðaskiptum við þig á samfélagsmiðlum, við töluðum við hana áðan og hún sagði hreinlega koma til greina að Efling myndi segja sig úr Alþýðusambandinu. Er einhver leið til að koma til móts við hana, hefurðu trú á því að það sé hægt að lægja þessar öldur?
„Þessar erjur eru náttúrulega dálítið á einn veg. Hér inni erum við bara með lýðræðislega ferla til þess að taka ákvarðanir og við þurfum að nýta þá. Það hafa oft verið átök í verkalýðshreyfingunni og þá eru þetta ferlarnir sem við höfum til að fjalla um slík átök. Ég hef ekki orðið vör við mikinn málefnanlegan ágreining í hreyfingunni hinsvegar, þannig mér finnst mikilvægt að við höldum sjónar á málefnunum og fjöllum um þau því þar á launafólk gríðarlega mikla og ríka sameiginlega hagsmuni.“
Halla segir verkalýðshreyfingar eiga sína fulltrúa í miðstjórn ASÍ. Þar sé hlutfallsleg skipting til þess að tryggja að röddunum sé skipt og allir sem þurfi fái að koma að borðinu, þar eigi valdið og ábyrgðin heima.
„Ég skil satt að segja ekki af hverju þetta varaforsetamál er orðið að svona stóru máli. Miðstjórn leggur til að fækka þeim í einn þar sem þeir hafa ekkert eiginlegt hlutverk samkvæmt lögum ASÍ. Það snýst ekki um að útiloka einn eða neinn, heldur bara um að ákvarðanatakan sé á réttum stöðum. Þetta hlutverk er nánast ekkert í dag. Þannig að ég styð þessa tillögu en mér finnst líka bara miklu stærri og mikilvægari mál sem við erum að fjalla um hérna núna.“
Og ertu búin að hitta Sólveigu Önnu í dag? Andar köldu á mill ykkar líka í persónulegum samskiptum eða bara á samfélagsmiðlum?
„Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra.“
Halla segist standa við það sem hún hafi áður sagt, að verði breytingatillaga samþykkt um fækkun varaforseta og forseti ASÍ komi úr röðum VR þá muni hún draga framboð sitt til baka til varaforseta. „Það finnst mér bara eðlilegt en fyrst og fremst þá þarf varaforseti að vera einhver sem þing Alþýðusambandsins treystir til þess að gegna í forföllum forseta. Það er það sem varaforseti þarf að geta gert.“