Ekki eru allir á einu máli um hvort hefja eigi aðildarviðræður við Evrópusambandið, tekist var á um Evrópumálin í Vikulokunum í dag. Kolbrún Bergþórsdóttir, blaðamaður, pistlahöfundur og bókmenntaagagnrýnandi segist sjálf opin fyrir inngöngu Íslands í Evrópusambandið.
„Ég er bara venjuleg manneskja úti í bæ sem veit ekkert hvað okkur stendur til boða en ef einhver réttir mér samning og segir: „Skoðaðu þennan samning og tölum saman, athugaðu hvort þetta hentar mér og þér,“ þá segi ég ekki nei, mig langar ekkert að tala við þig!“
Ég er bara venjuleg manneskja úti í bæ sem veit ekkert hvað okkur stendur til boða
Kolbrún segist innilega vona að samningaviðræður gangi vel kjósi þjóðin já í ágúst, verði samningurinn hins vegar óhagstæður fyrir Ísland muni hún segja nei við inngöngu landsins í sambandið.
Umæðan sé komin út í ógöngur
Jónas Hagan Guðmundsson fjárfestir, frumkvöðull og stórnarmaður í Hreyfingunni Já til að sjá, telur að stíga þurfi eitt skref til baka í umræðunni, búið sé að missa örðræðuna út í vitleysu.
„Fólk er farið að uppnefna hvort annað og tína til hin ýmsu atriði sem að kannski skipta ekki öllu máli og svona minnir mig stundum á hérna, við erum svona eiginlega farin að semja við sjálfa okkur.“
Í ágúst segir Jónas já. Hann segir þó ekki þar með sagt að hann segi já við inngöngu Íslands í Evrópusambandið, taka verði aðra ákvörðun um það ef að því kemur.
Enginn samningur sem hægt verði að segja já við
Hermann Guðmundsson framkvæmdarstjóri Kemi, segir að ekki sé hægt að bjóða honum neinn samning sem hann féllist á, Ísland sé fremstu röð í heiminum í lífskjörum og á öðrum mælikvörðum, undarlegt væri að hörfa frá þeirri vegferð núna.
„Þetta tel ég bara vera ranga stefnu, vonda hugmynd og óskiljanlegt fyrir Íslendinga að fara þessa leið, að afsala sér dómsvaldi, löggjafavaldi og framkvæmdarvaldi að hluta til Brussel tel ég bara vera óskiljanlega hugmynd fyrir fullvalda þjóð.“
Hægt er að hlusta á Vikulokin í heild sinni hér í spilaranum fyrir neðan. Urður Örlygsdóttir hafði umsjón með þættinum.