Með nýrri aðferð tekur einungis einn og hálfan mánuð að byggja hjúkrunarheimili í Hafnarfirði. Verktaki segir þetta fyrsta heimilið sem er byggt á þennan hátt.
Það má kannski helst líkja þessu við að raða saman risastórum legókubbum. Hver kubbur, eða eining, er forsmíðaður úr stáli og vegur 30 tonn og inniheldur tvær litlar íbúðir og gang.
Fyrstu einingarnar komu sjóleiðis frá Póllandi til Hafnarfjarðar. Í þeim er um helmingur hjúkrunarrýmanna og restin kemur á næstu vikum.
Frá Hafnarfjarðarhöfn voru einingarnar fluttar á byggingarstað í Hamranesi. Þar var þeim komið fyrir á grunninum.
Íslenskar fasteignir sjá um framkvæmdir. Húsið verður reist að fullu í lok október og síðan tekur ýmis frágangur við og bygging sameiginlegra rýma.
„Þetta verður byggt mjög hratt og mér skilst að upp úr áramótum, í febrúar, munu fyrstu íbúarnir flytja inn í fullklárað heimili,“ segir Orri Björnsson formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar.
„Þetta er fyrsta hjúkrunarheimilið sem er byggt þannig að allt húsið er byggt úr stáleiningum,“ segir Sveinn Björnsson framkvæmdastjóri Íslenskra fasteigna.
Mikil vinna að baki skipulaginu
Ein eining er 17 metrar á lengd, að sögn Sveins. Til hvors enda er fullbúið og fullinnréttað hjúkrunarrými og milli þeirra er gangur.
Hann segir mikla vinnu liggja að baki skipulagi hússins sem hafi verið í samráði við heilbrigðisþjónustuna Sóltún. Horft var til þess að vinnan nýttist við framtíðaruppbyggingu hjúkrunarheimila.
„Með þessu hér erum við búin að stíga yfir ákveðið erfiðleikastig og endurtekningin orðinn möguleiki sem styttir ferlið enn frekar.“