Skjálfti sem varð í Langjökli klukkan rúmlega tvö í dag fannst vel í nágrenni jökulsins. Kolbrún Ósk Sæmundsdóttir, íbúi á Hjarðarlandi í Bláskógabyggð, var vel vör þegar skjálftinn reið yfir.
„Ég var bara nýsest í sófann og svo heyrist bara hvín. Fyrst hélt ég reyndar að það væri einhver að koma í hlaðið en svo sló stofuklukkan bara óvænt og það glamraði í gleri í skápum og hristist hressilega.“
Skjálftinn var af stærðinni 4,2 og er stærsti skjálfti á svæðinu frá árinu 2022. Skjálftanum hafa fylgt tugir eftirskjálfta. Kolbrún segist ekki oft verða vör við skjálfta á svæðinu og segist hún sjálf vera nokkuð róleg þó að henni sé almennt ekki vel við skjálfta.
„Ég er alveg slök yfir þessu svo sem. Maður verður ekkert oft var við svona. Þannig lagað hef ég engar áhyggjur, án þess að ég viti nokkuð.
Fannst við jökulinn en ekki inni í jöklinum
Starfsfólk og gestir ferðaþjónustufyrirtækisins Into The Glacier, sem fer með ferðir inn í Langjökul, urðu ekki varir við skjálftann sem reið yfir á Langjökli í dag. Starfsmenn sem voru við störf nærri jaðri jökulsins fundu þó vel fyrir honum.
Birgitta Björg Jónsdóttir, yfirmaður hjá Into The Glacier, segir að farið verði vel yfir svæðið í og við ísgöngin í Langjökli og að fyrirtækið fylgist nú áfram með stöðunni í samráði við Veðurstofuna og Almannavarnir.