Síðustu daga hefur mikið verið fjallað um deilur innan SÁÁ. Hátt settir stjórnendur hafa nýlega sagt upp störfum og stór hópur starfsmanna lýsti yfir vantrausti á stjórn samtakanna í síðustu viku.
Hvað hefur gengið á og um hvað snúast deilurnar innan SÁÁ?
Afsagnir hátt settra starfsmanna
Í byrjun ágúst var tilkynnt um að forstjóri SÁÁ, Ragnheiður Hulda Friðriksdóttir, væri að láta af störfum.
Í framhaldinu hættu líka Þóra Björk Ingólfsdóttir, fagstjóri á meðferðarstöðinni Vík, og Valgerður Rúnarsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga.
Heimildir fréttastofu herma að auk þess séu læknir, fagstjóri lækninga og fagstjóri sálfélagslegrar meðferðar á sjúkrahúsinu Vogi komnir í veikindaleyfi.
Afskipti af faglegu starfi
Eftir að hún sagði upp sakaði Valgerður stjórn SÁÁ um að hafa haft afskipti af faglegu heilbrigðisstarfi samtakanna – sem reka meðal annars sjúkrahúsið Vog.
Hún sagðist ekki treysta sér til að vinna faglegt heilbrigðisstarf undir nýjum forstjóra.
Valgerður sagði enn fremur að starfslok Ragnheiðar Huldu, fráfarandi forstjóra, hefðu verið í óþökk allra nema stjórnar.
Þóra Björk, fyrrverandi fagstjóri á Vík, tekur undir það að deilurnar tengist afskiptum stjórnar af faglegu starfi innan SÁÁ.
Hún segir þau meðal annars hafa falist í síendurteknum afskiptum af meðferð og því að stjórnin skipaði starfsfólk eða fæli því verkefni án samráðs við yfirmenn.
Segir deilur tengjast samningi við SÍ
Þóra Björk segir að innleiðing heildarsamnings við Sjúkratryggingar hafi haft í för með sér tilteknar kröfur á SÁÁ.
„En áherslurnar voru allt aðrar hjá stjórninni. Þau vildu fara aðra leið og voru ekki að fylgja eftir samningnum sem er mikilvægt til að halda fjármagni.“
Hún fullyrðir að Ragnheiði Huldu hafi verið bolað úr starfi en Þóra Björk segir að ágreiningur formanns og forstjóra hafi meðal annars tengst samningnum við Sjúkratryggingar.
„Áttin sem þau vildu fara var allt önnur. Okkar áhersla var að standa við þessa samninga.“
Anna Hildur Guðmundsdóttir, formaður SÁÁ, hefur hafnað því að stjórn félagsins hefði afskipti af faglegu starfi innan samtakanna. Henni bæri þó að hafa eftirlit með starfseminni.
Vantraustsyfirlýsing fjölda starfsmanna
Á föstudag lýstu á sjöunda tug starfsmanna yfir vantrausti á formann og framkvæmdastjórn SÁÁ.
„Brottför reynslumikilla lykilstjórnenda, samhliða alvarlegum áhyggjum þeirra af afskiptum stjórnar af faglegu starfi, kallar á skýr svör. Að okkar mati hefur starfsfólki ekki verið veitt fullnægjandi skýring á því hvernig þessi staða varð til, hvar ábyrgðin liggur eða hvernig tryggja eigi faglegt sjálfstæði heilbrigðisstarfsins til framtíðar,“ skrifuðu starfsmenn SÁÁ.
Þeir óskuðu eftir því að aðalstjórn brygðist við yfirlýsinu þeirra.
Aðalstjórn brást við yfirlýsingunni með því að halda aukaaðalfund í gærkvöld. Þar tóku meðal annars til máls fyrrverandi forstjóri og fráfarandi framkvæmdastjóri lækninga.
Niðurstaða fundarins varð að aðalstjórn samþykkti stuðningsyfirlýsingu við framkvæmdastjórn.
Í tilkynningu sagði að unnið yrði að því að byggja upp traust og tryggja vinnufrið.
Samkvæmt heimildum fréttastofu fóru þrír starfsmenn á Vogi í veikindaleyfi eftir að tilkynnt var um ákvörðun aðalstjórnar.
Fréttastofa hefur reynt að ná tali af stjórnarmönnum í framkvæmdastjórn SÁÁ í dag.