Matvælastofnun varar við neyslu á tveimur tegundum af fæðubótarefnum frá vörumerkinu Guli miðinn sem Heilsa ehf. flytur inn. Aðskotaefnið pyrrolizidine alkalóíða mældist yfir mörkum í vörunum Husk með lotunúmer 25/16/11 og Colon Cleanser með lotunúmer 25/5/59.
Neytendur sem hafa keypt umræddar vörur eru beðnir um að hætta notkun þeirra og farga en
einnig má skila þeim í versluninni þar sem þær voru keyptar eða hjá Heilsu ehf.