Landris undir Svartsengi hefur mælst um fimm sentimetrar undanfarna þrjá mánuði og líklegasta sviðsmyndin er áfram að kvikuhlaup verði yfir í Sundhnúksgígaröðina sem gæti leitt til eldgoss. Þetta kemur fram í uppfærðu hættumati Veðurstofu Íslands.
Ekki er hægt að segja til um hvenær slíkur atburður gæti orðið.
Þrýstingur byggist enn upp á nokkurra kílómetra dýpi en eftir því sem lengra líður frá síðasta gosi eykst óvissa um tímasetningu þess næsta.
„Gera þarf áfram ráð fyrir stuttum fyrirvara, líkt og fyrir fyrri gos á Sundhnúksgígaröðinni.“