Smartland greindi fyrst frá nýja parinu en í umfjöllun miðilsins segir að Friðrik og Jóna hafi kynnst í gegnum sameiginlega vini.
Parið ferðaðist saman um Frakkland í sumar og voru þar á Frönsku rívíeruna þar sem þau dvöldu meðal annars á Cannes og í Antibes.
Jóna Vigdís starfar á skrifstofu bæjarstjóra í Kópavogsbæ og hefur áður starfað sem verkefnastjóri á mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar. Friðrik Þór er einn fremsti kvikmyndaleikstjóri landsins og hefur gert fjölmargar sígildar kvikmyndir á borð við Rokk í Reykjavík (1982), Börn náttúrunnar (1991) og Engla alheimsins (2000).