Trúfélagið Smárakirkja, sem staðsett er í Grafarvogi í Reykjavík, hefur ásamt þremur fyrirtækjum í byggingageiranum lagt fram kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna ákvörðunar byggingarfulltrúa Hafnarfjarðarbæjar um að leggja dagsektir á eitt fyrirtækjanna. Eru Smárakirkja og fyrirtækin öll lóðarhafar lóðar í iðnaðarhverfi í Hafnarfirði en ágreiningur þeirra við Hafnarfjarðarbæ snýst um hlið.Kærendur fóru fram á að réttaráhrifum ákvörðunar byggingarfulltrúa yrði frestað á meðan kæran er til meðferðar hjá nefndinni sem hefur nú úrskurðað um þá kröfu.
Trúfélag í Reykjavík í hart við Hafnarfjarðarbæ