Vaðölduver, fyrsta vindorkuver landsins, var gangsett í dag. Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, ræsti vindorkuverið með samskiptum við stjórnstöð Landsvirkjunar í Reykjavík. Honum til halds og traust var Ásbjörg Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Framkvæmda hjá Landsvirkjunar.Um 250 manns voru viðstaddir athöfnina. Það er starfsfólk Landsvirkjunnar, verktakar, nærsveitarfólk og gestir.14 vindmyllur hafa verið reistar og aðrar 14 verða ræstar á næsta ári. Verður Vaðölduver komið í full afköst í lok ársins 2027.
Vindmyllurnar ræstar