Úkraínskir karlmenn fá framvegis ekki dvalarleyfi hér á landi nema þeir hafi lokið herskyldu samkvæmt frumvarpi sem dómsmálaráðherra hyggst leggja fram á næstunni. Málið var afgreitt úr ríkisstjórn í síðustu viku.
Breytingin er í samræmi við beiðni úkraínskra stjórnvalda sem hafa átt í erfiðleikum með að manna herdeildir. Milljónir Úkraínumanna hafa leitað skjóls í öðrum löndum eftir að innrásarstríð Rússa hófst og þar af um sjö þúsund á Íslandi.
Ríki Evrópusambandsins og Noregur hafa þegar ákveðið að verða við þessari beiðni og breyta sinni löggjöf. Þetta þýðir að úkraínskir karlmenn þurfa framvegis að sýna fram á að þeir hafi lokið herskyldu til að fá skjól í þessum löndum.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir mikilvægt að íslensk löggjöf sé í samræmi við reglur annarra Evrópulanda.
„Það hefur verið leiðarstef ríkisstjórnarinnar að ganga í takt í útlendingamálum við önnur Evrópuríki. Ég held að það þurfi ekki að hugsa það mjög lengi hver afleiðingin yrði ef að Ísland stæði eitt landa eftir með dyrnar opnar þegar önnur ríki hafa tekið gagnstæða ákvörðun,“ segir Þorbjörg.
Gert er ráð fyrir að frumvarpið verði lagt fram síðar í þessum mánuði.
„Þetta hefur engin áhrif á þann hóp sem þegar er kominn til Íslands. Við merkjum það hins vegar að það er að verða breyting á þeim sem sækja um alþjóðlega vernd frá Úkraínu. Framan af voru þetta konur með börn. Mamma, amma og barn. Við sjáum í auknum mæli núna að það eru að koma stakir karlmenn. Þetta hafa Norðurlöndin líka merkt í sínum tölum. Þannig að það er stígandi í þessum hópi og hefur verið. En núna erum við að taka sömu ákvörðun og Norðurlöndin öll og reyndar Evrópusambandið í heild sinni,“ segir Þorbjörg.