Erlendur karlmaður sætti gæsluvarðhaldi og var ákærður á Íslandi vegna stórfellds innflutnings á fíkniefnum frá Spáni. Hann er talinn hafa fylgt og ekið burðardýrum á leið til Íslands á flugvöll á Spáni.
Þau fluttu samtals rúmlega fimm kíló af kókaíni til landsins í ágúst og september 2025 og hlutu bæði dóma fyrir hérlendis.
Upprættu alþjóðlegt glæpagengi
Málið tengist alþjóðlegum aðgerðum við upprætingu glæpagengis sem notaði burðardýr til að smygla kókaíni frá Suður-Ameríku til Evrópu.
Aðgerðir lögreglu voru á Íslandi, í Litáen, á Spáni, í Belgíu og Danmörku með stuðningi frá Europol og Eurojust. Ellefu voru handteknir á Íslandi, sex í Litáen, fjórir á Spáni, tveir í Belgíu og einn í Danmörku.
Karlmaðurinn sem hefur verið ákærður á Íslandi er einn þeirra sem voru handteknir á Spáni. Hann er með dvalarleyfi þar en er frá Dóminíska lýðveldinu.