Ekið var á hjólreiðamann við Gránufélagsgötu á Akureyri á sjötta tímanum í dag. Þetta staðfestir lögreglan á Norðurlandi eystra.
Lögregla og sjúkrabíll voru kölluð á vettvang.
Hjólreiðamaðurinn var skoðaður af sjúkraflutningamönnum og boðið að fara á sjúkrahús en hann afþakkaði það, að sögn Heimis Heiðarssonar varðstjóra.
Fréttin hefur verið uppfærð.