Fyrsta vindorkuver landsins, Vaðölduver, var gangsett í dag við hátíðlega athöfn. Ásbjörg Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs Landsvirkjunnar flutti ávarp ásamt Brynju Baldursdóttur stjórnarformanni og Herði Arnarsyni forstjóra Landsvirkjunnar.
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra flutti einnig ávarp og Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra gangsetti verið.
Segja má að veðurguðirnir hafi verið of blíðir við gesti því varla neinn vindur var í Vaðöldu í dag. Ásbjörg nefndi bleika fílinn í herberginu við upphaf athafnarinnar.
„Þegar maður skipuleggur gangsetningarathöfn fyrir vindorkuver þá er því miður eitt sem maður hefur takmarkaða stjórn á. Það er vindurinn sjálfur. Eins þakklát eins og ég er fyrir þennan sólríka og fallega haustdag þá bendir til þess að vindurinn ætli mögulega að sýna okkur hver ræður hér í dag með því að mæta ekki.“
Karlakór Hreppamanna flutti tvö lög við athöfnina. Meðal annars Fjallið Skjaldbreiður, erlent lag við ljóð Jónasar Hallgrímssonar.
Fréttin hefur verið uppfærð með myndskeiði frá athöfninni.