Snorri Másson, varaformaður Miðflokksins, segist hafa fengið nóg af sívaxandi notkun ensku í almannarými hér á landi. Hann vill herða lög þannig að auglýsingar og skilti á Íslandi verði ávallt á íslensku.Snorri gerði stöðu íslenskunnar að umtalsefni í ræðu á Alþingi í dag og hóf mál sitt með óvenju afdráttarlausum hætti.„Virðulegur forseti. Ég hef fengið nóg. Með leyfi yðar: „Grocery store, bakery, lunch, menu, street food, take away, open, closed,““ sagði Snorri.
Snorri ómyrkur í máli á Alþingi: „Virðulegur forseti. Ég hef fengið nóg“