Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sjónvarpi símans en þar segir að á veitunni verði í boði bæði sígildar og nýjar breskar þáttaraðir, sem koma meðal annars frá BBC og All3Media.
Á veitunni verður meðal annars að finna bresku útgáfuna af The Office, Little Britain og Luther, ásamt spennuþáttunum The Missing og Baptiste. Meðal nýrra þáttaraða á veitunni má nefna The Assassin með Keeley Hawes og Freddie Highmore í aðalhlutverkum, I Fought the Law og The Catch, auk nýju spennuþáttaraðarinnar Gone.
Ný þáttaröð bætist við í hverri viku og verður BritTV hluti af áskrift að Sjónvarpi Símans Premium ásamt HBO Max og Hayu.
„Breskar þáttaraðir hafa lengi notið mikilla vinsælda hér á landi. Því lá beint við að bjóða upp á sérstaka veitu þar sem bæði sígildum og nýjum breskum þáttum er safnað saman,“ segir Birkir Ágústsson, framkvæmdastjóri miðla hjá Símanum.