Slökkvistarf í Toppstöðinni í Elliðaárdal gekk vel í gær þó að erfitt hafi reynst að finna eldsupptök vegna reyks, segir slökkviliðsstjóri. Áætlanir um starfsemi í húsinu breytast ekki þrátt fyrir brunann, að sögn eiganda þess, og til stendur að opna í lok árs 2028.
Töluverður eldur kom upp í Toppstöðinni í Elliðaárdal á sjötta tímanum í gær. Birgir Finnsson, settur slökkviliðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu, segir eldinn hafa farið í timburklæðningu inni í húsinu, en hann hafi verið staðbundinn
„Við fórum inn á tveimur stöðum með slöngur og svo tók svolítinn tíma að finna eldsupptökin vegna þessa mikla reyks en svo gekk það bara vel og við vorum ekki lengi að því. Hins vegar tók mjög langan tíma að reykræsta.“
Asbest skapaði ekki hættu við slökkvistarf
Toppstöðin, sem er gömul aflstöð, er einangruð með asbesti. Mikill reykur barst frá húsinu og yfir Fossvoginn og voru íbúar beðnir um að loka gluggum.
„Asbest er náttúrulega ekki skemmtilegt efni en það var nú á sínum tíma meðal annars til vegna þess að það var svo brunaþolið. Það er í útveggjunum þarna, þar sem eldurinn var að hluta, en hversu mikið af því tjóni sem verður er við asbestið og kemur í reykinn geri ég mér ekki alveg grein fyrir,“ segir Birgir.
Og skapaði asbestið einhverja hættu fyrir slökkviliðsmenn?
„Nei, að okkar mati ekki, við pössuðum að vera með reykköfunartæki bæði þarna fyrir utan og síðan inni í slökkvistarfinu og við erum bara farnir að passa okkur betur og vinna betur með öndunarvörn þegar við erum í svona starfi.“
Nú er þetta annar eldurinn á stuttum tíma í þessu húsi – er einhver tenging þarna á milli?
„Nei, það er með svona byggingar sem eru tómar og sem verið er að reyna að loka eftir bestu getu. Það eru einhverjir sem eru að leita skjóls eða leita inn. Þarna var einhver umgangur búinn að vera víst og nú ætlar eigandinn að reyna að vinna í því að loka húsinu betur.“
„Höldum okkar plönum“
Brynjólfur Smári Þorkelsson, framkvæmdastjóri og eigandi Eignabygginga, sem keypti húsið í byrjun árs, segir að farið hafi betur en á horfðist. Framkvæmdir hafi ekki verið hafnar í húsinu og áætlanir um starfsemi þar breytist ekki þrátt fyrir brunann. Til standi að opna húsið í lok árs 2028.
„Ég held að við höldum okkar plönum en svo eru náttúrulega áformin með húsið sjálft í höndum Reykjavíkurborgar og okkar sem vinnum í skipulagi. Þannig að það er bara vinna sem heldur áfram.“