„Það er ekkert þannig að þetta sé eitthvað sem Donald Trump er einn að pæla í. Svo ég nú uppljóstri hérna, í janúar fékk ég upplýsingar um að eitthvað væri að fara af stað, innan sex mánaða, gagnvart Íslandi. Ég kem þeim upplýsingum til skila á rétta staði,“ segir Bjarni Már Magnússon lögmaður og fyrrverandi prófessor í viðtali í þættinum Flekaskil þar sem hann ræddi við Dag B. Eggertsson þingmann Samfylkingarinnar um símtal Trump til Bjarna Benediktssonar, þáverandi forsætisráðherra þar sem Trump lagði til að Ísland yrði innlimað í Bandaríkin.
Bjarni Már ljóstrar upp um ábendingu: „Þetta er ekki bara eitthvað rugl í einum manni“