Þrjú norsk ungmenni voru dregin fyrir dóm í dag í tengslum við skipulag á launmorði í Bretlandi sem tengist sænsku glæpasamtökunum Foxtrot. Drengir á aldrinum 17–19 ára eru sakaðir um að aðstoða hinn 19 ára gamla Johannes Kongsnes Natland sem var dæmdur fyrir að leggja á ráðin um manndráp í Bretlandi.
Natland var sakaður um að hafa ferðast til Bretlands í mars 2025 í þeim tilgangi að skjóta mann til bana gegn greiðslu sem jafngilti þremur og hálfri milljón íslenskra króna. Hann var handtekinn með vopn í fórum sínum áður en hann fékk tækifæri til að láta til skarar skríða.
Drengirnir þrír sem voru dregnir fyrir dóm í Noregi í dag neita allir sök.
Einn þeirra er sakaður um að hafa milligöngu um þátt Natlands í ætluðu launmorði, annar er sagður hafa fylgt honum til Bretlands og hvatt hann til að ljúka ætlunarverkinu og sá þriðji fyrir að millifæra pening inn á reikning hans.
Natland var sakfelldur í júlí. Hann neitaði sök en gekkst við því að eiga vopnin sem fundust í fórum hans.
17 ára drengur sem sakaður var um að ráða Natland til verknaðarins var dæmdur í 14 ára fangelsi í Noregi í sumar fyrir þrjár tilraunir til manndráps og aðild að tveimur manndrápum í Svíþjóð sem rakin voru til Foxtrot. Hann hefur áfrýjað þeim dómi.