Fyrsta vindorkuver landsins gangsett í logni
„Í dag erum við að opna nýjan kafla í íslenskri orkusögu,“ sagði Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Fyrsta vindorkuver á Íslandi, Vaðölduver, var gangsett í dag í blíðviðri.
„Í dag erum við að opna nýjan kafla í íslenskri orkusögu,“ sagði Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, þegar fjórar vindmyllur voru gangsettar í fyrsta vindorkuveri Íslands, Vaðölduveri, í dag. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra ræsti vindmyllurnar. Til stendur að fjórtán af þeim 28 vindmyllum sem reisa á við Vaðöldu verið tilbúnar til notkunar nú í september. Gert er ráð fyrir því að fullur rekstur verið hafinn fyrir lok árs 2027.
Lopapeysuprýddur Karlakór Hreppamanna, sem skipa meðal annars Sigurð Inga Jóhannsson, alþingismann Framsóknarflokksins og fyrrum forsætisráðherra Íslands, flutti íslensk dægurlög til að opna athöfnina í haustsólinni í dag.
Stjarna dagsins, vindurinn, lét þó ekki sjá sig enda blíðviðri víða um land í dag. „Hvílíkur dagur sem við fáum hérna. Ég vona að það verði ekki alltaf svona veðursæld hér. Betra að það sé vindur þar sem rísa vindorkuver,“ sagði Jóhann Páll í ræðu sinni á viðburðinum.
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra …