Ísland byggir ekki lengur útflutning sinn eingöngu á fiski og áli heldur eru komnar fleiri stoðir undir gjaldeyrisöflun þjóðarinnar. Ferðaþjónustan skilar miklu en nýtur líka ákveðinna fríðinda. Samhliða vexti í henni hefur álag á samgöngukerfið og fleiri kerfi aukist. Það verður að dreifa byrðunum af uppbyggingu þessara innviða og til lengri tíma nýtur ferðaþjónustan góðs af því. Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Daði Már Kristófersson: Innviðagjaldið stuðlar að sterkari ferðaþjónustu um allt land allt árið