Sveitarstjórar landsins eru flestir með á þriðju milljón króna í mánaðarlaun. Launin haldast að ákveðnu leyti í hendur við íbúafjölda, en þó eru á því áberandi undantekningar.
Í fámennustu sveitarfélögum landsins kostar það hvern íbúa sveitarfélagsins um 10 þúsund krónur á mánuði að greiða laun sveitarstjórans.
Fréttastofa hefur kortlagt launakjör allra sveitarstjóra landsins.
Það þarf ekki að koma á óvart að hæstu launin komi í hlut borgarstjórans í Reykjavík, sem stýrir langfjölmennasta sveitarfélagi landsins. Laun borgarstjóra, að meðtöldum starfstengdum greiðslum, eru um 3.127 þúsund krónur – þ.e. 3 milljónir og 127 þúsund krónur. Þá fær borgarstjóri bíl til umráða og bílstjóra.
Í fámennasta sveitarfélagi landsins, Tjörneshreppi, fær sveitarstjórinn 344 þúsund krónur. Þar búa 54. Í þriðja fámennasta sveitarfélagi landsins, Fljótsdalshreppi, fær sveitarstjórinn aftur á móti nærri þrefalt betur borgað, 985 þúsund krónur. Þar búa 115.