Fjórtán vindmyllur verða gangsettar í Vaðöldu í dag, sem er helmingur þeirra 28 vindmylla sem eiga að vera komnar í fullan rekstur fyrir lok næsta árs. Athöfn fer fram í Vaðöldu í dag þar sem Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra mun gangsetja fyrstu vindmylluna.
Búist er við nokkru fjölmenni, en meðal þeirra sem flytja ávörp eru stjórnarformaður og forstjóri Landsvirkjunnar, auk Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfis og loftslagsráðherra.
Fréttastofan verður á staðnum og mun senda beint út frá viðburðinum á Vísi og hefst útsending laust fyrir klukkan þrjú.
Hægt verður að fylgjast með útsendingu frá vettvangi í spilara sem mun birtast þegar styttist í útsendingu.