Rodrigo Duterte, fyrrverandi forseti Filippseyja, ber fyrir sig minnisleysi við málarekstur gegn honum fyrir Alþjóðlega sakamáladómstólnum í Haag, þar sem hann sætir ákæru fyrir glæpi gegn mannkyni.
Honum er gefið að sök að hafa fyrirskipað að þúsundir yrðu teknar af lífi án dóms og laga í stríði hans gegn fíkniefnum.
Réttarhöld yfir honum eiga að hefjast 30. nóvember en lögmannateymi hans vegur nú og metur hvort fært sé að rétta yfir honum.
Í réttarskjali sögðu lögmenn hans nýverið að Duterte „þjáist af umtalsverðu minnisleysi sem gerir honum ókleift að muna upplýsingar sem honum voru nýlega látnar í té og að kalla fram minningar með áreiðanlegum hætti“.
Teymi hans segir ómögulegt fyrir hann að gefa lögmannateyminu fyrirmæli um hvernig reka skuli málsvörn hans, þar sem hann gleymi oft og tíðum nafni aðallögmanns síns, Peter Haynes, sem ritar nafn sitt undir áðurnefnt réttarskjal. Haynes sé nauðugur einn sá kostur að reka málið án nokkurs innleggs frá skjólstæðingi sínum.
Teymi saksóknara andmælir þessu í réttarskjali fyrir dómnum og segir Duterte fullfæran um að sitja réttarhöldin.
Reglur Alþjóðlega sakamáladómstólsins kveða á um að ekki megi rétta yfir fólki sem getur ekki á marktækan hátt tekið þátt í réttarhöldunum.
Saksóknarar segja að læknar sem mátu Duterte hafi ekki gert það á fullnægjandi hátt og vilja kalla þá fyrir dóminn.
Verjendur Dutertes vísa til þess að hann hafi við læknisskoðun haldið að árið væri ýmist 2007 eða 2008 og að hann væri 84 eða 85 ára gamall. Duterte er 81 árs. Þá gat hann ekki sagt hver forseti Bandaríkjanna væri.
Saksóknarar segja þó ljóst að Duterte hafi ekki svarað hreinskilnislega eða þá hagrætt svörum sínum á læknisprófi.
Duterte hefur einu sinni komið fyrir dóminn í Haag síðan málsmeðferð gegn honum hófst. Það var með fjarfundarbúnaði og virtist hann þá nokkuð vankaður og átti erfitt með að gera sig skiljanlegan. Síðan þá hafa verjendur hans farið fram á að honum verði leyft að vera ekki við dóminn á meðan málsmeðferð fer fram, heilsu hans vegna.
Ákæran yfir Duterte er í þremur liðum. Hann er sakaður um að eiga beinan þátt í að minnsta kosti 76 morðum á árunum 2013-18.