Húsleit hjá Telenor vegna gruns um mannréttindabrot í Mjanmar
Norska fjarskiptafélagið Telenor er til rannsóknar vegna gruns um hlutdeild í glæpum gegn mannkyni og mögulegra brota á refsiaðgerðum í tengslum við starfsemi og sölu dótturfélags fyrirtækisins í Mjanmar. Telenor er að stærstum hluta í eigu norska ríkisins.
Norsk yfirvöld greindu frá því í dag að gerð hefði verið húsleit í höfuðstöðvum norska fjarskiptafyrirtækisins Telenor. Félagið er grunað um hlutdeild í glæpum gegn mannkyni í Mjanmar.
Viðskiptavinir fyrrverandi dótturfélags Telenor í Mjanmar, Telenor Myanmar (TML), höfðuðu mál gegn fyrirtækinu fyrr á þessu ári vegna þess að viðkvæmum persónuupplýsingum þeirra hefði verið deilt með herforingjastjórn landsins.
Þeir halda því fram að upplýsingarnar hafi verið notaðar til að bera kennsl á, handtaka og sækja til saka lýðræðissinna sem grunaðir voru um að standa gegn hernum í Mjanmar.
Norska rannsóknarlögreglan Kripos og norska öryggislögreglan PST hafa hafið tvær aðskildar rannsóknir á Telenor, að sögn lögreglu.
Kripos rannsakar Telenor vegna gruns um hlutdeild í glæpum gegn mannkyni á tímabilinu frá 1. febrúar 2021 til 25. mars 2022.
Tímabilið nær frá þeim degi þegar herinn framdi valdarán gegn ríkisstjórn Aung San Suu Kyi í Mjanmar og þar til Telenor seldi dótturfélag sitt …