Nokkrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram frumvarp til breytinga á hegningarlögum. Segja þeir lagafrumvarpið nauðsynlegt til að taka af öll tvímæli um að það sé heimilt að dæma menn í 20 ára fangelsi fyrir manndráp. Vísa þingmennirnir til dóms yfir Albananum Angjelin Sterkaj sem myrti landa sinn, Armando Beqirai, fyrir utan heimili þess síðarnefnda í Rauðagerði í Reykjavík árið 2021. Hæstiréttur taldi ekki heimilt að dæma hann í lengra en 16 ára fangelsi ef um tímabundna refsingu væri að ræða.
Vilja taka af öll tvímæli vegna Rauðagerðismálsins