Ljóst var í gær að samkomulag Hafnarfjarðarbæjar og Tækniskólans um að nýr skóli risi í bænum hefði runnið út í sandinn eftir að bærinn gat ekki útvegað lóð fyrir skólann eins og heitið hafði verið.
Áform um að reisa skólann við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði voru fyrst kynnt fyrir fimm árum, en Tækniskólinn er stærsti framhaldsskóli landsins með um 3.000 nemendur og er nú með starfsemi á nokkrum stöðum.
Á nýjum stað átti að koma starfseminni undir einu þaki á 30.000 fermetrum sem á að kosta 27 milljarða og til stóð að skólinn yrði fullbyggður 2029.
Talsverð uppbygging stendur til í þessu hverfi bæjarins sem meðal annars tekur mið af því að þarna rísi skólinn, og deiliskipulag vegna skólans var samþykkt í vor.
Alls ekki gott
„Þetta er alls ekki gott en við erum að reyna að gera þetta í þokkalegu samkomulagi, þannig að við gerum nú ekki illt verra,“ segir Egill Jónsson stjórnarformaður Tækniskólans.
„En þetta þýðir seinkun á verkefninu. Við þurfum að leita annarrar lóðar. Við áætlum að þetta tefji málið í að minnsta kosti tvö ár þegar allt er talið. Gæti tafið það meira.“
Orri Björnsson formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar segir að ekki hafi verið hægt að halda áfram með verkefnið þar sem Tækniskólinn hefði ekki getað beðið lengur eftir að framkvæmdir hæfust.
„Þannig að ákvörðunin var sú að leita annað þar sem er hægt að komast hraðar af stað,“ segir Orri.
Þegar hefur komið fram að stjórnendum skólans hugnast ekki önnur staðsetning í Hafnarfirði. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri í Reykjavík sagði í Kastljósi í gær að skólinn gæti risið í Úlfarsárdal. „Okkur hugnast sú staðsetning satt best að segja ljómandi vel, svona á fyrstu skrefum,“ svarar Egill spurður um hvernig stjórnendum Tækniskólans lítist á þá hugmynd borgarstjóra.
Mosfellsbær vill fá Tækniskólann
Hilmar Gunnarsson bæjarstjóri í Mosfellsbæ segir að fengur yrði að Tækniskólanum í bæinn, starfsemi hans félli vel að framtíðarsýn Mosfellsbæjar, styrkja atvinnulíf og þjónustu í bænum og skapa mikilvæg tækifæri fyrir ungt fólk og samfélagið allt.
„Það er mikilvægt að ný framtíðarstaðsetning skólans finnist hratt svo ekki verði frekari tafir á þessu mikilvæga verkefni,“ segir Hilmar og segir að bærinn gæti brugðist skjótt við.
Segir bæinn ekki hafa tapað fé
Spurður hvort Hafnarfjarðarbær tapi fé vegna þess hvernig málalyktir urðu segir Orri svo ekki vera. „Alls ekki. Í raun og veru var það þannig að við vorum að leggja fram mjög mikla fjármuni til þess að Tækniskólinn yrði hér í bænum. En ef við erum að fara að byggja eitthvað annað, þá munum við selja lóðirnar.“
Ætla ekki í neina hörku
Egill segir að fulltrúar Tækniskólans hafi rætt við Hafnarfjarðarbæ um bótaskyldu vegna þess hvernig fór.
„Við munum eðlilega fara fram á það að Hafnarfjarðarbær bæti okkur beinan útlagðan kostnað. Við ætlum ekki í einhverja hörku eða einhverjar himinháar kröfur en við höfum rætt að það sé eðlilegt að þeir beri með okkur hluta af þessum útlagða kostnaði í það minnsta.“
Spurður að því hvort standa hefði átt öðruvísi að málum segir Orri að svo gæti vel verið. „Ef maður hugsar til baka núna - þá hefði sennilega verið betra að finna annan stað í upphafi.“