Í dag má búast við sunnan og suðvestan 5-13 metrum á sekúndu og skúrum en að mestu björtu austanlands.
Hiti verður á bilinu 7 til 15 stig, hlýjast á Austfjörðum.
Hægari vindur verður á morgun og skúrir en vestan 8-13 metrar með suðurströndinni síðdegis.
Þurrt að kalla norðaustantil en stöku skúrir síðdegis.
Hiti verður á bilinu 8 til 14 stig, mildast norðan heiða.
Víðáttumikil lægð suðvestur í hafi
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands segir að víðáttumikil lægð suðvestur í hafi beini til okkar ákveðinni sunnan- og suðvestanátt með skúrum í dag. Úrkoman nái væntanlega ekki yfir á Austurland og þar ætti því að haldast bjart veður.
Á morgun þokast lægðin norðaustur yfir land en verður búin að grynnast talsvert og mestur vindur úr henni. Víða verði skúrir en þurrt framan af degi norðaustantil á landinu og stöku skúrir þar síðdegis.