Samtök ferðaþjónustunnar hafa gagnrýnt harðlega nýleg áform fjármála- og efnahagsráðherra um að hækka virðisaukaskatt á aðgang að baðlónum úr 11% í 24%. Samtökin telja þetta brot á fyrri yfirlýsingum stjórnvalda um að ekki yrði hækkaður virðisaukaskattur á ferðaþjónustu.
Fjármálaráðherra segir það ekki koma á óvart að forsvarsmenn baðlóna láti í sér heyra og kvarti þegar sérmeðferð sem þeir hafi notið góðs af sé afnumin.
„Það er ákveðin starfsemi sem Íslendingar eru sammála um að fjármagna og þjónusta sem ríki og sveitarfélög veita. Og það er þá með einhverjum hætti okkar verkefni að velja minnst skaðlegu leiðirnar til að gera það. Það er okkar mat að þetta sé breyting sem sé skynsamleg,“ segir Daði Már.
Samtök ferðaþjónustunnar kalla sérstaklega eftir því að hætt verði við skattahækkunina og segja að hún muni hækka verð til gesta, veikja samkeppnishæfni baðlóna og ferðaþjónustunnar í heild og draga úr fjárfestingum og frekari uppbyggingu.
„Niðurstaða okkar er sú að þarna sé um aðgerð að ræða sem auðvitað hafi einhver neikvæð áhrif en að þau séu réttlætanleg. Þetta er ein af þeim sérstöðum sem Ísland býður upp á. Það dylst engum sem nýtir sér þessa þjónustu að hún er dýr. Þetta er ákveðinn lúxus og iðulega er það nú þannig að þannig vörur er hægt að skattleggja án þess að neikvæðu áhrifin séu umtalsverð,“ segir Daði Már.
En hvað skilar þetta ríkissjóði?
„3-4 milljörðum á ári,“ segir Daði Már.