Gunnlaugur Víðir Guðmundsson, forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar Gleðibankans í Hlíðahverfi í Reykjavík, telur að geta starfsfólks félagsmiðstöðva til að sjá og taka utan um vanda barna skerðist til lengri tíma eftir uppsagnir borgarinnar.
Hætt sé við því að starfsfólk félagsmiðstöðva þurfi að taka við hluta þeirra verkefna sem starfsfólk frístundamiðstöðva sinnti.
„Það segir sig eiginlega sjálft að þegar þú tekur burt fagþekkingu þá mun ábyrgðin aukast á þau sem eftir verða. Það mun náttúrlega alltaf verða til þess að þjónustan verður minni eða ekki eins góð og hún á að vera.“
86 starfsmönnum Reykjavíkurborgar var sagt upp í vikunni. Af þeim fá 32 boð um nýtt starf. Í hagræðingaraðgerðum borgarinnar sem taldar eru geta sparað 900 milljónir eru felld niður rúmlega 60 stöðugildi á velferðarsviði og skóla- og frístundasviði.
Frístundamiðstöðvar borgarinnar sem halda utan um starfsemi frístundaheimila og félagsmiðstöðva verða lagðar niður og verkefni þeirra færð undir skóla- og frístundasvið.
„Þetta er enginn sparnaður“
Gunnlaugur telur áhrifin af niðurskurðinum geta orðið þvert á markmið borgarinnar, sem er sparnaður.
„Mínar áhyggjur eru að það séu einhver börn sem gætu fallið á milli ef til dæmis mitt ábyrgðarsvið eykst yfir í það sem minn deildarstjóri hefur haft.“
Það telur Gunnlaugur að geti aukið kostnað annars staðar í kerfinu síðar meir. Kostnaður sem fylgi einstaklingum sem falla á milli birtist í félagsþjónustunni, heilsugæslu, löggæslu og með minni skatttekjum.
„Þetta er enginn sparnaður til lengri tíma,“ segir Gunnlaugur Víðir Guðmundsson.