Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, tekur undir orð sem Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, lét falla í viðtali við Morgunblaðið í gær um að íslenskt atvinnulíf væri komið í ójafnvægi.
„Ég verð að viðurkenna að ég get ekki annað en tekið undir með Bjarna. Ef við skoðum launaþróun á Íslandi undanfarin 10 ár þá er alveg rétt sem hann segir: Á þessari vegferð getum við ekki haldið áfram, það er bara útilokað,“ segir Daði.
Hann segir að nú þurfi að endurskoða vinnumarkaðslíkanið þannig að horft verði meira til framleiðni. Aðrir aðilar innan vinnumarkaðarins hafi skilning á því að núverandi fyrirkomulag sé ekki sjálfbært.
„Ég held að það sé mjög mikilvægt fyrir samfélagið í heild sinni að líta í eigin barm, því það er alveg ljóst að það var lágtekjufólk sem vildi taka áhættuna af því að auka ráðstöfunartekjur sínar með því að ná verðbólgunni niður og vöxtum í kjölfarið. Þetta hefur alls ekki gengið eftir og því er það undarlegt að sjá að þegar menn eru komnir með allt í skrúfuna, hvað varðar verðbólguvæntingar, verðbólguna sjálfa og að ekki sé talað um vaxtakjörin, þá er talað um að mikilvægt sé að allir standi saman. Ég spyr, hví í ósköpunum gerðu menn það ekki í upphafi þegar við lögðum í þessa vegferð í mars 2024?“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambands Íslands, þegar leitað var viðbragða hans við orðum Bjarna.
„Það er algengt þegar allt er komið fjandans til að þá er farið að benda á lágtekjufólk og að það þurfi að axla sína ábyrgð. En það fólk er búið að axla hana,“ segir hann og bendir á fregnir af milljóna bónusum til forstjóra fyrirtækja á markaði. Hann telur allar líkur á að forsendur samninga bresti.
Lestu umfjöllunina í heild sinni hér og á blaðsíðu 20 í Morgunblaðinu: