Flestir Íslendingar eiga í fullu fangi með að reyna muna eftir að taka d-vítamínið og lýsið sitt. Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian er hins vegar svo annt um heilsuna að hún tekur 35 vítamín á hverjum degi.
„Ég tek örugglega 35 bætiefni á dag,“ sagði Kim Kardashian í hlaðvarpsþætti leikkonunnar Amy Pohler að því fram kemur á vef E!. „Ég skipti þeim yfir allan daginn.“
Flestir geta verið sammála um að þetta sé mikið og er Kardashian sammála en hún er fullviss um að hún þurfi á öllum bætiefnunum að halda. „Ég hugsaði ég get ekki gert þetta fiskiolíudót akkúrat núna. Ég verð að hætta þessari fiskiolíu, ég er með pilluþreytu,“ segir Kardashian sem fór og lét athuga í sér blóðið og þar koma í ljós að hún hefði hætt. Hún þurfti því að breyta aftur.
Kardashian er sögð vera mjög upptekin af heilsunni sérstaklega eftir að hún greindist með æðagúlp í heila árið 2025. Ástæðan var stress.
