Boðað hefur verið til samningafundar í kjaradeilu flugmanna hjá Icelandair og fyrirtækisins og verður fundurinn haldinn í kvöld kl. 19. Þetta staðfestir Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari í samtali við Morgunblaðið.
Aðspurður segir hann að þótt tímasetning fundarins sé óvenjuleg, þá sé ekki hægt að ráða neitt sérstakt af henni, þetta hafi einfaldlega verið sá tími sem allir hlutaðeigandi komust á fund.
„Ég vildi endilega flýta þessum fundi eins og kostur var. Þetta var eini tíminn sem var laus og ég ákvað að nota hann,“ segir Ástráður.
Hann segir að tekist sé á um ákveðnar hugmyndir sem varða sveigjanleika til að skipuleggja störf flugmanna. Icelandair hafi haft uppi hugmyndir um aukinn sveigjanleika hvað varðar skipulagningu starfa þeirra. Á hinn bóginn hafi flugmenn gert kröfur um að sömu reglur stuðluðu að auknum möguleikum þeirra til að samræma vinnu og einkalíf.
„Þarna takast á hagsmunir sem eru að einhverju leyti öndverðir og það er verið að reyna að finna einhverjar lausnir á þeim málum. Aðilarnir eru að viðra sínar hugmyndir um þetta. Síðan hafa verið uppi hugmyndir af hálfu Icelandair um að auka heimildir til þess að takast á við sveiflur í eftirspurn með því að geta tekið tímabundið á leigu flugvélar með áhöfnum,“ segir hann og nefnir að áhafnirnar gætu hvort heldur sem væri verið skipaðar innlendum eða erlendum flugmönnum sem ekki væru fastir starfsmenn félagsins.
„Slíkar takmarkaðar heimildir hafa verið í samningum lengi og eru til þess að bregðast við óvæntum atvikum, bilunum og öðru slíku, en af hálfu félagsins hafa verið hugmyndir um að geta skipulagt slíka notkun til þess að takast á við kúfa sem stundum hafa verið til vandræða í starfsemi félagsins,“ segir Ástráður.
„Það er þekkt vandamál sem menn hafa glímt við lengi að menn hafi verið ráðnir á tilteknum árstíma og sagt upp á öðrum. Þetta eru hugmyndir sem eru mjög viðkvæmar og erfiðar og varða ýmis grundvallaratriði sem stéttarfélög eru oft að fást við. Þetta eru helstu umfjöllunarefnin,“ segir hann.
Spurður um hvort launaliðurinn hefði mikið vægi í vinnudeilunni sagði Ástráður að umræða um hann hefði nær engin verið. Það mál væri ekki á oddinum í deilunni.
Forgangur FÍA í brennidepli
Heimildarmaður sem þekkir vel til reksturs félagsins segir við Morgunblaðið að deilan snúist að mestu leyti um ákvæði sem veitir Félagi íslenskra flugmanna (FÍA) einkarétt á öllu flugi á vegum Icelandair Group. Vegna þessa geti félagið ekki ráðið til sín erlent og ódýrara vinnuafl.
„Það kallast blautleigusamningur þegar þú færð annað flugfélag til að fljúga fyrir þig í þínu nafni undir þinni kennitölu, það er bara annar sem sér um flugið. Icelandair getur ekki gert það, þeir geta ekki ráðið aðra flugmenn á meðan þetta ákvæði er til staðar.“
Hann telur að félagið reyni nú að losa sig undan þessu ákvæði við litla hrifningu íslensku flugmannanna sem eru, að hans sögn, á mun hærri launum en þeir erlendu.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins fá flugmenn Icelandair, sem bregðast við óskum um að koma til vinnu á frídögum, greidd 15% af mánaðarlaunum sínum fyrir viðvikið. Getur sú upphæð numið allt að 400 þúsund krónum samkvæmt kjarasamningi.
Fáðu þér áskrift til að lesa áfram
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu,
rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki
á mbl.is.