Möguleiki er á að stemma stigu við útbreiðslu ebólafaraldursins í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó að mati Tedros Adhanom Ghebreyesus, framkvæmdastjóra Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar.
Hann lýsti þessu yfir þegar hann kom til landsins í gær og segir stofnunina ekki styðja ferðabann til að stöðva útbreiðsluna, það geri lítið gagn. „Við getum stöðvað þennan faraldur í sameiningu,“ sagði Tedros.
Stofnunin segir á annað þúsund tilfella ebólu hafa greinst í Kongó og að næstum 240 hafi látist af völdum sjúkdómsins frá því um miðjan maí. Mun fleiri kunni þó að hafa sýkst.
Yfirvöld í nágrannaríkinu Úganda, þar sem ebóla hefur komið upp, hafa lokað landamærunum að Kongó fyrir öllum nema heilbrigðisstarfsfólki, þeim sem sinna mannúðaraðstoð. Einnig má flytja mat og aðrar vörur yfir landamærin.
Hvorki eru til viðurkennd bóluefni né önnur meðferð við þeim stofni ebólu sem nú geisar. Tedros heldur í dag til austurhluta Kongó þar sem faraldurinn á uppruna sinn.
Þar hafa stjórnarherinn og M23 uppreisnarsveitirnar barist á banaspjótum og Tedros hefur brýnt hvora tveggja til að leggja niður vopn til að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu ebólu.
Sjúkdómurinn hefur orðið yfir 15 þúsund manns að bana í Afríku undanfarna hálfa öld. Versti faraldurinn í Kongó kostaði líf 2.300 af þeim 3.500 sem vitað er að sýktust á árunum 2018 til 2020.