Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um framlengingu gæsluvarðhalds yfir síbrotamanni til mánudagsins 2. nóvember. Málið hófst þann 5. september síðastliðinn þegar kona tilkynnti þjófnað úr bílnum sínum sem hún hafði lagt á ónefndum stað í Reykjavík, farið inn í hús og dvalist þar í um fimm mínútur. Þegar hún kom aftur út í bílinn var taskan hennar horfin horfin ásamt öllu sem í henni var, þ. á m. demantskrossi, gullarmbandi og kortaveski með kortum. Var áætlað verðmæti um 700.000 krónur.
Tapaði 700 þúsund krónum þegar taskan hennar hvarf úr bílnum