Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veitum. Þar segir að Veitur skilji vel að ásýnd Varmár og umræðan undanfarna daga veki áhyggjur hjá íbúum og þeim sem tengjast svæðinu sterkum böndum.
„Við tökum það mjög alvarlega. Við vinnum náið með eftirlitsaðilum og sérfræðingum að því að meta umhverfisáhrifin og tryggja að lífríkið njóti vafans.
Þá segjast Veitur ætla upplýsa reglulega á vefsíðu sinni um stöðu framkvæmda í dalnum.