Fjöldi boðsmiða á sýningar Þjóðleikhússins árið 2025 var 9.739 sem jafngildir um 9% af heildarmiðafjölda leikhússins. Árið 2015 var fjöldinn 18.715 sem jafngildir um 28% af heildarmiðafjölda.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í svari Loga Einarssonar, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, við fyrirspurn frá Þorsteini B. Sæmundssyni, varaþingmanni Miðflokksins, um rekstur Þjóðleikhússins.
Miðasölutekjur fara hækkandi
Í svarinu segir að heildartekjur Þjóðleikhússins séu nú 2,3 milljarðar króna.
„Opinber stuðningur til rekstrar Þjóðleikhússins hefur verið á bilinu 68–79% af heildartekjum, fyrir utan árið 2020 þegar lokað var fyrir tekjustrauma vegna samkomubanns vegna heimsfaraldurs,“ segir í svarinu.
Þá segir að vegna mikillar aðsóknar og góðs gengis leikhússins hafi miðasölutekjur hækkað úr um 18% í 27%.
„Þetta hlutfall milli opinbers stuðnings og sjálfsaflafjár er í takt við það sem gerist í flestum sambærilegum leikhúsum í Vestur-Evrópu en þó er algengara að hlutfall sjálfsaflafjár sé ögn lægra en í tilfelli Þjóðleikhússins,“ segir Logi í svari sínu.
121.000 gestir árið 2025
Fjöldi seldra aðgöngumiða í Þjóðleikhúsið árið 2025 var 104.902. Heildaraðsókn var um 121.000 ef með eru taldar skólasýningar á Orra óstöðvandi, skoðunarferðir, námskeið og aðrir viðburðir á vegum leikhússins.
Almennt miðaverð leikhússins hefur hækkað talsvert á undanförnum árum en það stendur nú í 7.950 krónum samanborið við 4.950 krónur árið 2015. Samkvæmt svarinu hafa hækkanir verið gerðar til að mæta hækkuðu verðlagi.
