Sendibifreið var ekið á skilti sem hangir neðan úr hæðarslá við nýju göngubrúna yfir Sundabraut í gærkvöld.
Skemmdir urðu á skiltinu og er viðgerð lokið til bráðabirgða að sögn Sigríðar Ingu Sigurðardóttur hjá samskiptadeild Vegagerðarinnar.
„Bifreiðin stöðvaðist eftir að hafa rekist í skiltið og við erum fegin að bifreiðin fór ekki áfram undir brúna. Það sýnir að þessar slár eru að gera sitt gagn,“ segir Sigríður Inga við mbl.is.
Hún segir að starfsmenn Vegagerðarinnar hafi unnið að viðgerð á skiltinu í gærkvöld og í nótt.