Starfsmenn laugarinnar hafi verið komnir til vinnu í morgun til að undirbúa opnun þegar komst í ljós að framið hefði verið innbrot, segir Kristján Guðmundsson, formaður Ungmennafélagins Íslendings. Töluverðar skemmdir hafi verið á hurð húsnæðis laugarinnar þar sem brotist var inn. Brösuglega hafi gengið fyrir þjófinn að komast í gegnum gler hurðarinnar, enda um sterkt öryggisgler að ræða.
„Hann fann einhver áhöld þarna hjá okkur bakatil sem hann notaði til að brjóta á hurðina. Það gekk mjög erfiðlega, þetta var frekar sterkt öryggisgler þannig að hann var töluvert lengi að komast í gegnum glerið,“ segir Kristján.
„Þetta er bara svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu. Þetta er í rauninni sundlaug sem er rekin í sjálfboðastarfi, það er ungmennafélag sem á laugina. Það er búin að vera mikil uppbygging þarna síðustu árin og bara svolítil synd að lenda í svona.“
Sem betur fer hafi ekki mikil verðmæti verið í húsnæðinu en þó hafi sjóðsvélinni og öðrum minni hlutum verið stolið. Hringt hafi verið strax á lögreglu og hún rannsaki nú málið. Lögregla sé með góðar upplýsingar í höndunum en öflugt myndavélakerfi sé á staðnum þar sem sjáist í viðkomandi og bíl hans.
„Við treystum því bara að lögreglan leysi þetta“ segir Kristján.
Töluvert tjón sem verði vonandi lagað sem fyrst
Tjónið á hurðinni sé töluvert og panta þurfi nýtt gler í hurðina sem taki töluverðan tíma.
„Þetta er leiðinlegt tjón og það tekur svolítinn tíma að laga þetta, það er verið að panta nýja glugga, karmurinn er ónýtur og allt. Þannig að þetta er töluvert tjón og vonandi leysist það fljótt.
Lögð hafi verið áhersla á að opna laugina sem fyrst og þau séu að því leitinu til heppin með nágranna sem kipptu málunum í lag í bili. Bráðabrigðaviðgerðir hafi verið gerðar á hurðinni og því hafðist að taka á móti gestum á ný í dag.
„Við áttum góða aðila hérna í sveitinni sem gátu komið og gert svona bráðabirgðaviðgerðir, þannig að við gátum opnað bara þarna seinna um daginn.“