Svisslendingar ganga að kjörborðinu í næsta mánuði til að greiða atkvæði um umdeilt frumvarp sem miðar að því að takmarka íbúafjölda landsins við tíu milljónir. Til þess að frumvarpið hljóti brautargengi þarf tillagan stuðning bæði meirihluta kjósenda og meirihluta kantóna.
Tillagan var sett fram af Svissneska þjóðarflokknum (SVP) sem lengi hefur talað fyrir róttækari stefnu af hálfu stjórnvalda í málum innflytjenda. Rúmlega 27% íbúa Sviss voru með erlent ríkisfang undir lok síðasta árs.
Flestir stjórnmálaflokkar leggjast gegn frumvarpinu
Samkvæmt opinberum spám gæti íbúafjöldi Sviss náð yfir tíu milljónum í kringum 2050 en að mati þjóðarflokksins hefur ört vaxandi íbúafjöldi á undanförnum árum leitt til húsnæðisskorts, hækkandi leiguverðs, umferðartafa og aukins álags á heilbrigðis- og samgöngukerfi landsins.
Fengi tillagan samþykki þyrftu svissnesk stjórnvöld að grípa til aðgerða ef íbúafjöldinn færi yfir 9,5 milljónir fyrir árið 2025. Aðgerðirnar fælu meðal annars í sér harðari reglur sem snúa að hælisleitendum og fjölskyldusameiningu. Ef íbúafjöldinn næði tíu milljónum þyrftu svissnesk stjórnvöld einnig að segja upp samningi sínum við Evrópusambandið um frjálsa för fólks.
Í frétt frönsku fréttaveitunnar AFP segir að stjórnvöld í Sviss, þingið og flestir aðrir stjórnmálaflokkar leggist gegn frumvarpinu og hafi varað við því að samþykki þess gæti haft afdrifarík áhrif á samskipti Sviss við Evrópusambandið, ásamt því að stofna efnahag landsins í hættu.
Þar að auki hefur ríkisstjórnin sagt að uppsögn samningsins um frjálsa för gæti haft áhrif á þátttöku Sviss í Schengen- og Dyflinnarsamstarfi Evrópu.
Andstæðingar þess benda jafnframt á að stór hluti svissnesks atvinnulífs reiði sig á erlent vinnuafl, sérstaklega í byggingariðnaði og ferðaþjónustu. Þá sýni rannsóknir fram á að fækkun fólks á vinnumarkaði geti aukið vandann sem fylgir öldrun þjóðarinnar.